Fréttayfirlit 21. maí 2026

841 króna af hverju 1.000 króna framlagi skilar sér til hjálparstarfsins

841 króna af hverju 1.000 króna framlagi skilar sér til hjálparstarfsins


Ársskýrsla SOS Barnaþorpanna á Íslandi fyrir árið 2025 hefur nú verið birt hér á heimasíðunni eftir aðalfund samtakanna 20. maí sl. Þar kemur m.a. fram að hlutfall stjórnunarkostnaðar er áfram með því allra lægsta sem gerist eða aðeins 15,9%. Það þýðir að SOS Barnaþorpin á Íslandi sendu 84,1% af heildartekjum ársins 2025 úr landi í verkefni erlendis í þágu barna, eins og t.d. í rekstur barnaþorpa.

Þetta jafngildir því að 841 króna af hverju eitt þúsund króna framlagi skilar sér til hjálparstarfsins. Heildartekjur samtakanna á Íslandi voru 932,9 milljónir króna og þar af voru framlög styrktaraðila 859,8 milljónir króna.

Sjá einnig: Ársreikningur SOS 2025

Heild­ar­tekj­ur fé­lags­ins námu 932,9 millj­ón­um króna árið 2025. Rakel Lind Hauksdóttir, fjármálastjóri

Eftirfarandi er pistill fjármálastjóra SOS Barnaþorpanna í ársskýrslunni.

Heildartekjur ársins 932,9 milljónir

Á árinu 2025 styrktu 19.430 einstaklingar og 437 lögaðilar SOS Barnaþorpin á Íslandi, ýmist með mánaðarlegum framlögum, stökum eða bæði. Framlög einstaklinga og lögaðila námu 706,2 milljónum kr. á árinu en voru 792,8 árið 2024. Opinber framlög hækkuðu milli ára og námu 153,6 milljónum kr., samanborið við 90,8 milljónir kr. árið 2024. Þannig námu heildarframlög styrktaraðila 859,8 milljónum kr. á árinu 2025 og lækkuðu þau um 23,8 milljónir kr. milli ára.

Hins vegar lækkaði liðurinn erfðagjafir um 120,8 milljónir krónur enda barst stærsta erfðagjöf í sögu samtakanna á Íslandi árið áður. Rakel Lind Hauksdóttir, fjármálastjóri

Framlög almennings hækkuðu um 34,2 milljónir kr.

Þrátt fyrir að heildarframlög einstaklinga og lögaðila hafi lækkað um 23,8 milljónir kr. milli ára hækkuðu framlög almennra styrktaraðila um 34,2 milljónir og opinber framlög um 62,8 milljónir kr. Hins vegar lækkaði liðurinn erfðagjafir um 120,8 milljónir krónur enda barst stærsta erfðagjöf í sögu samtakanna á Íslandi árið áður. Á árinu 2024 fengu samtökin erfðagjafir alls að fjárhæð 145 milljónum króna en á árinu 2025 nam sá liður 23,7 milljónum. Heildartekjur félagsins lækkuðu um 19 milljónir króna milli ára og námu 932,9 milljónum kr. árið 2025. 

Stærsti hluti af framlögum til SOS á Íslandi kemur frá SOS foreldrum sem við sendum til barnaþorpa í 107 löndum. Rakel Lind Hauksdóttir, fjármálastjóri

687,2 milljónir króna frá almenningi

Frá stofnun samtakanna hér á landi hefur almenningur stutt dyggilega við starfið og var þar engin undantekning á árinu 2025. Af þeim 859,8 milljónum sem söfnuðust frá styrktaraðilum komu 74% styrkja frá almenningi eða 687,2 milljónir krónur. Stærsti hluti af framlögum til SOS á Íslandi kemur frá SOS foreldrum sem við sendum til barnaþorpa í 107 löndum.

Af hverjum 1.000 krónum sem bárust í framlögum á árinu rann því 841 króna beint til hjálparstarfsins. Rakel Lind Hauksdóttir, fjármálastjóri

Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður

Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður nam 17,6% af heildartekjum ársins og var því undir 20% viðmiði samtakanna um rekstrarkostnað. Í þeirri tölu er þó talinn með launakostnaður starfsfólks sem sinnir beinni umsýslu verkefna hérlendis og erlendis. Að teknu tilliti til þess var kostnaðarhlutfallið 15,9%. Af hverjum 1.000 krónum sem bárust í framlögum á árinu rann því 841 króna beint til hjálparstarfsins.

Rakel Lind Hauksdóttir, fjármála- og fjáröflunarstjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Rakel Lind Hauksdóttir, fjármála- og fjáröflunarstjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi.
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður

Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður nam 17,6% af heildartekjum ársins og var því undir 20% viðmiði samtakanna um rekstrarkostnað. Í þeirri tölu er þó talinn með launakostnaður starfsfólks sem sinnir beinni umsýslu verkefna hérlendis og erlendis. Að teknu tilliti til þess var kostnaðarhlutfallið 15,9%. Af hverjum 1.000 krónum sem bárust í framlögum á árinu rann því 841 króna beint til hjálparstarfsins.

Nýlegar fréttir

SOS Barnaþorpin auglýsa eftir fjármálastjóra
5. maí 2026 Almennar fréttir

SOS Barnaþorpin auglýsa eftir fjármálastjóra

SOS Barnaþorpin á Íslandi óska eftir að ráða öflugan fjármálastjóra til að stýra fjármálum félagsins. Fjármálastjóri ber heildarábyrgð á fjármálum, reikningshaldi og fjárreiðum auk þess að hafa virka ...

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna verður 20. maí
4. maí 2026 Almennar fréttir

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna verður 20. maí

Aðalfundur samtakanna 2026 verður haldinn miðvikudaginn 20. maí kl. 17:00 í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Til þess að fé­lagi geti nýtt fé­lags­leg rétt­indi sín á að­al­fundi skal hann skrá sig á f...