Fréttayfirlit 2. nóvember 2020

Áhrif faraldursins á styrktaraðila SOS

Áhrif faraldursins á styrktaraðila SOS

Covid-19 heimsfaraldurinn kemur að einhverju leyti niður á starfsemi SOS Barnaþorpanna um allan heim. Við viljum af því tilefni upplýsa þig um mögulegar takmarkanir sem styrktaraðilar gætu fundið fyrir um þessar mundir. SOS Barnaþorpin hafa þurft að gera ýmsar breytingar sem eru þó aðeins tímabundnar og við munum kappkosta við að láta þig finna sem minnst fyrir þeim.

Eftirfarandi biðjum við þig um að hafa í huga!

1 Ekki senda bréf eða pakka
Styrktarforeldrar eru hvattir til að bíða með að senda bréf eða pakka til barnanna. Ekki er hægt að tryggja að þessar sendingar komist á leiðarenda í núverandi ástandi.

2 Engar heimsóknir í barnaþorp
Allar heimsóknir eru bannaðar í SOS barnaþorp næstu mánuðina. Styrktarforeldrar skulu því bíða með að skipuleggja slíkar ferðir þangað til aðstæður breytast.

3 Bréf til styrktarforeldra og þorpsvina
Möguleiki er á að bréfasendingarnar frá barnaþorpunum til styrktaraðila riðlist aðeins til í einstaka tilfellum á þessu ári. Á meðan hömlur eru á heimsóknum í barnaþorpin er erfiðara að safna upplýsingum um börnin til að deila með þér.

4 Nýir styrktarforeldrar
Nýir styrktarforeldrar fá áfram upplýsingamöppu með mynd og upplýsingum um þeirra styrktarbarn. Á því verður engin breyting.

5 Við erum til staðar fyrir þig
Hafirðu einhverjar spurningar er þér velkomið að hafa samband við okkur. Ef þú lendir í fjárhagsvandræðum en vilt halda áfram að styðja við börnin þá viljum við endilega heyra frá þér og skoða hvernig við getum komið til móts við þig á þessum erfiðu tímum.

Tölvupóstur: sos@sos.is 
Facebook messenger
Spjallgluggi á heimasíðu
Sími: 564 2910
Öllum skilaboðum er svarað við fyrsta tækifæri.

Skrifstofutími SOS Barnaþorpanna á Íslandi er sem hér segir:
9-16 mánudaga til fimmtudaga
9-13 föstudaga
Lokað um helgar.

Að lokum viljum við þakka þér innilega fyrir stuðninginn við munaðarlaus og yfirgefin börn. Hann hefur sjaldan verið mikilvægari en nú.

Nýlegar fréttir

Skemmdir hjá SOS í Úkraínu
2. júl. 2026 Almennar fréttir

Skemmdir hjá SOS í Úkraínu

Skrifstofa SOS Barnaþorpanna í Kænugarði í Úkraínu varð fyrir skemmdum sl. nótt þegar Rússar létu sprengjum rigna yfir borgina. Starfsfólk er óhult.

Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna
26. jún. 2026 Almennar fréttir

Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna

Öflugir jarðskjálftar riðu yfir Venesúela með þeim afleiðingum að þúsundir manna hafa orðið fyrir áhrifum. Börnin og starfsfólkið í SOS barnaþorpunum í landinu eru óhult en lífsreynslan hefur tekið á....