Frétta­yf­ir­lit 13. apríl 2020

Áhrif Covid-19 á fjöl­skyldu­efl­ingu SOS



TulumoyeCovid-19 far­ald­ur­inn er nú far­inn að setja strik í reikn­ing­inn í Fjöl­skyldu­efl­ingu SOS Barna­þorp­anna eins og út­lit var fyr­ir. Það kall­ar á breytt verklag SOS á verk­efna­stöð­un­um en starfs­fólk SOS hef­ur brugð­ist skjótt við og stend­ur sig vel. Í SOS barna­þorp­un­um eru börn­in bet­ur var­in þess­ari ógn en í Fjöl­skyldu­efl­ing­unni eru skjól­stæð­ing­ar okk­ar ber­skjald­aðri því þeir búa á opn­um svæð­um.

Vart við heim­il­isof­beldi

Fram­lög ís­lenskra Fjöl­skyldu­vina renna til sára­fá­tækra barna­fjöl­skyldna í Eþí­óp­íu og á Fil­ipps­eyj­um og hjálpa þeim að ná fjár­hags­legu sjálf­stæði. Þörf­in fyr­ir Fjöl­skyldu­efl­ingu hef­ur auk­ist á báð­um stöð­um vegna Covid-19 en á sama tíma á starfs­fólk okk­ar erf­ið­ara með að liðsinna skjól­stæð­ing­un­um vegna ferða­tak­mark­ana og annarra hindr­ana.

Skól­ar eru lok­að­ir og fjöl­skyld­ur eru meira sam­an á heim­il­inu en áður. Það leið­ir til auk­inn­ar hættu á heim­il­isof­beldi og hef­ur þess þeg­ar orð­ið vart. Fé­lags­ráð­gjaf­ar okk­ar gera það sem þeir geta til að ræða við skjól­stæð­ing­ana og hjálpa þeim í þess­um krefj­andi að­stæð­um.

TulumoyeKall­ar á breytta og aukna að­stoð

Fjöl­skyldu­efl­ing SOS geng­ur m.a. út á það að hjálpa fjöl­skyld­um að afla tekna. Ferða­tak­mark­an­ir hafa nú leitt til þess að fjöl­skyld­urn­ar eiga erf­ið­ara með að stunda við­skipti og afla sér tekna. Þess vegna er hætt við því að SOS Barna­þorp­in muni þurfa að að­stoða fjöl­skyld­urn­ar með bein­um fram­lög­um og/eða mat­ar­gjöf­um og eins að það taki fjöl­skyld­urn­ar lengri tíma en ella að koma und­ir sig fót­un­um.

Við sjá­um nú þeg­ar hækk­un á kostn­aði í verk­efn­un­um vegna Covid-19 og mun hann hækka enn frek­ar á næstu vik­um. Stuðn­ing­ur Fjöl­skyldu­vina hef­ur því aldrei ver­ið eins mik­il­væg­ur og nú.

Um leið og við upplýsum þig um núverandi stöðu mála viljum við þakka þér fyrir þinn stuðning. Hann kemur svo sannarlega að gagni nú á tímum heimsfaraldursins og tilheyrandi neyðar.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í eftirlitisferð SOS á Íslandi til Tulumoye-svæðisins í Eþíópíu í febrúar 2020. Börnin á myndunum eru skjólstæðingar Fjölskyldueflingarinnar sem SOS á Íslandi fjármagnar með aðstoð Fjölskylduvina og Utanríkisráðuneytisins.

Ný­leg­ar frétt­ir

855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið
23. maí 2025 Al­menn­ar frétt­ir

855 krón­ur af hverju þús­und króna fram­lagi renna í hjálp­ar­starf­ið

Árs­skýrsla SOS Barna­þorp­anna fyr­ir árið 2024 hef­ur nú ver­ið birt eft­ir að­al­fund sam­tak­anna 19. maí sl. Þar kem­ur m.a. fram að hlut­fall rekstr­ar­kostn­að­ar er með því allra lægsta sem ger­ist eða að­eins 1...

23 milljónum króna af erfðagjöf ráðstafað til háskólamenntunar
22. maí 2025 Erfða­gjaf­ir

23 millj­ón­um króna af erfða­gjöf ráð­staf­að til há­skóla­mennt­un­ar

SOS Barna­þorp­in á Ís­landi hafa ráð­staf­að 23 millj­ón­um króna af erfða­gjöf til há­skóla­mennt­un­ar ung­menna í Afr­íku, nán­ar til­tek­ið í Rú­anda. Ráð­stöf­un­in er sam­kvæmt ósk­um arf­leif­anda, Bald­vins Leifs­son­ar...