Fréttayfirlit 19. júní 2018

„ÁFRAM ÍSLAND“ frá Eþíópíu og Mexíkó

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur reglulega vakið heimsathygli undanfarin ár fyrir afrek sín á vellinum en athyglin á liðinu hefur aldrei verið eins mikil og núna. Nú eru strákarnir okkar fyrir augum allrar heimsbyggðarinnar á HM í Rússlandi og aðdáendum liðsins fjölgar ört. Síðustu daga hafa stuðningskveðjur til íslenska liðsins borist skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi frá tveimur SOS Barnaþorpum, í Mexíkóborg og Addis Ababa í Eþíópíu.

Börnin í þorpinu í Mexíkó sendu myndir af sér með íslenska fánann og í Eþíópíu hafa börnin teiknað íslenska fánann og skreytt spjöld sem á stendur „áfram Ísland“ og „HUH“ fyrir Víkingaklappið.

175 börn eru í SOS barnaþorpinu í Addis Ababa og þar styrkja um 30 íslenskir styrktarforeldrar börn með mánaðarlegu framlagi. Í SOS barnaþorpinu í Mexíkóborg eru 47 börn og eru um 20 Íslendingar að styrkja börn þar með sama fyrirkomulagi. Eitt þeirra styrktarforeldra heimsækir þorpið einu sinni á ári. „Jafnvel þótt hann sé bara styrktarforeldri einnar stúlku hérna þá er hann mjög rausnarlegur við hinar stelpurnar líka. Þess vegna fannst þeim mjög ánægjulegt að senda Íslendingum þessa kveðju.“ segir í skilaboðum með einni myndinni.

SOS Barnaþorpin eru ein stærstu barnahjálparsamtök í heimi og sjá umkomulausum börnum fyrir öllum grunnþörfum eins og SOS fjölskyldu og menntun. Alls voru framlög íslenskra styrktarforeldra 392,5 milljón króna árið 2017. Þau styrktu börn í 437 barnaþorpum í 107 löndum með mánarlegum framlögum. SOS foreldri fær reglulega myndir og fréttir af sínu barni og getur jafnvel heimsótt það í þorpið.

Einfalt er að gerast styrktarforeldri hér á heimasíðunni.

Nýlegar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins
25. júl. 2024 Almennar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins

Börnin 68 sem flutt voru frá SOS barnaþorpinu í Rafah á Gaza til barnaþorpsins í Bethlehem á Vesturbakkanum í mars sl. eru komin aftur í skóla. Vegna stríðsins féll skólaganga þeirra niður í átta mánu...

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið
3. júl. 2024 Almennar fréttir

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið

Vegna aukinnar þarfar á stuðningi við börn í SOS barnaþorpum hefur sú breyting nú tekið gildi að tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið. Að meðaltali eru um fimm til sex SOS-foreldrar um hvert sty...