Aðalfundur SOS Barnaþorpanna 2024
![Aðalfundur SOS Barnaþorpanna 2024](/media/ie5ll3ms/stjorn-sos-2023_crop.jpg?width=1150&height=600&mode=crop&anchor=top)
Boðað er til aðalfundar SOS Barnaþorpanna mánudaginn 13. maí kl.17:30 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1a (gegnt Gerðasafni). Rétt til setu á aðalfundi eru skráðir aðildarfélagar í samtökunum. Í fjórðu grein samþykkta SOS segir:
Til þess að félagi geti nýtt félagsleg réttindi sín á aðalfundi skal hann skrá sig á fundinn með sannanlegum hætti eigi síðar en sólarhring fyrir boðaðan aðalfund og vera í skilum með félagsgjald.
Vinsamlegast skráið ykkur því á fundinn með því að senda tölvupóst á sos@sos.is eða með símtali á skrifstofuna, s. 5642910.
Dagskrá aðalfundarins er þannig:
- Kosning fundarstjóra og -ritara
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Lausn stjórnar og annarra ábyrgða
- Kosning stjórnar og varamanns
- Kosning endurskoðanda
- Ákvörðun um breytingar á samþykktum
- Ákvörðun félagsgjalds
- Önnur mál
Varðandi lið 5
Framboðum til stjórnar skal skilað inn til skrifstofu samtakanna eigi síðar en viku fyrir boðaðan aðalfund, þ.e. 6. maí. Eigi tilnefningarnefnd að geta tekið afstöðu til framboða þurfa þau þó að berast samtökunum í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund, þ.e. 29. apríl. Framboð skulu send á netfangið frambod@sos.is ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem kemur fram stutt ágrip og ástæður framboðs.
Kosið verður um sæti tveggja stjórnarmanna til þriggja ára og eins varamanns til eins árs. Tilnefningarnefnd mun leggja tillögu sína fyrir fundinn að fulltrúum í þessi sæti.
Með góðri kveðju
Starfsfólk SOS Barnaþorpanna
Nýlegar fréttir
![Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins](/media/fdcbxg4k/bethlehem_evacuated-children_lama-qattush_dsc_0299.jpg?width=410&height=300&mode=crop&bgcolor=ffffff)
Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins
Börnin 68 sem flutt voru frá SOS barnaþorpinu í Rafah á Gaza til barnaþorpsins í Bethlehem á Vesturbakkanum í mars sl. eru komin aftur í skóla. Vegna stríðsins féll skólaganga þeirra niður í átta mánu...
![Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið](/media/iszp3ngn/namibia-ondangwa-09-2022-1t9a7833_jpg.jpg?width=410&height=300&mode=crop&bgcolor=ffffff)
Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið
Vegna aukinnar þarfar á stuðningi við börn í SOS barnaþorpum hefur sú breyting nú tekið gildi að tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið. Að meðaltali eru um fimm til sex SOS-foreldrar um hvert sty...