SOS á Íslandi tryggir umönnun barna í Esvatíní
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að styðja við SOS Barnaþorpin í Esvatíní með 15 milljónum króna svo tryggja megi umönnun barna í þeirra umsjá. Fjármunirnir eru gjafir frá einstaklingum hér á landi sem valið hafa að gefa frjáls og óeyrnamerkt framlög til samtakanna.
Undanfarið hafa sum aðildarlönd SOS Barnaþorpanna dregið úr fjármögnun á framfærslukostnaði munaðarlausra og yfirgefinna barna og aukið þess í stað áherslu á fjármögnun forvarnarstarfs og stuðnings við barnafjölskyldur.
Börn í SOS barnaþorpi í Esvatíní
Viðbrögð við þróun sem ógnar rekstraröryggi barnaþorpa
Þessi stefnubreyting, sem ekki er eining um innan samtakanna, hefur m.a. skapað óvissu og óöryggi í rekstri barnaþorpa eins og í Esvatíní sem nutu áður meira fjárhagslegs öryggis vegna eyrnamerktra framlaga frá systursamtökum sínum í Evrópu.
Hluti af þessari þróun er minni áhersla á umönnun barna á heimilum SOS Barnaþorpanna. Kapp er lagt á að koma börnum fyrir í öðrum úrræðum, svo sem fósturfjölskyldum og hjá nánum ættingjum þar sem slíkt er í boði. Þessar breytingar eru oft í takti við áheyrslur yfirvalda á hverjum stað.
Í þeim tilvikum þar sem börnin eru ekki tilbúin að flytja úr barnaþorpunum eða býðst ekki önnur og betri úrræði en SOS bjóða, munu börnin búa áfram í barnaþorpunum og nýtist stuðningur Íslendinga þá við að greiða framfærslukostnað barnanna.
SOS Barnaþorpin á Íslandi munu vera í góðu samtali við systursamtök sín í Esvatíní og leita leiða til að tryggja það fjármagn sem nauðsynlegt er til að mæta þörfum þeirra barna sem ekki eiga í nein önnur hús að venda.
Esvatíní er í sunnanverðri Afríku.
Styrktu SOS Barnaþorpin í Esvatíní
SOS Barnaþorpin hafa stutt börn og ungt fólk án foreldraumsjár, eða í hættu á að missa hana, í Esvatíní síðan 1987. Í landinu eru þrjú SOS barnaþorp og í þeim búa samtals 166 börn og ungmenni. Samtals eru yfir 480 börn og ungmenni á framfæri samtakanna í Esvatíní, í barnaþorpum eða annarskonar umönnun.
Almenningur á Íslandi getur styrkt SOS Barnaþorpin í Esvatíní með því að gerast „SOS-foreldri“.
Þar velurðu að styrkja barnaþorp og skrifar Esvatíní í athugasemdadálkinn. Þannig styrkir þú rekstur ákveðins SOS barnaþorps þar í landi með mánaðarlegu framlagi svo tryggja megi öryggi og velferð þeirra barna sem þar búa. SOS foreldrar fyrir barnaþorp fá tvisvar á ári bréf frá umræddu barnaþorpi.
SOS foreldri
Vertu SOS foreldri
SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.
Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.