95 ára kona styrkti SOS um hálfa milljón
Á dögunum kom til okkar á skrifstofu SOS Barnaþorpanna í Kópavogi 95 ára gömul kona í þeim erindagjörðum að styrkja eitthvert af verkefnum samtakanna um hálfa milljón króna. Í samráði við þessu góðhjörtuðu konu var ákveðið að upphæðin yrði send í neyðaraðstoð SOS við barnafjölskyldur á flótta í Írak.
Þakklætiskveðja til Íslands frá Írak
SOS á Íslandi styrkti flóttamannaaðstoðina í Írak um 10 milljónir króna árið 2017 og bætist þessi styrkur við þá upphæð. Fjárframlögin frá Íslandi hafa mikla þýðingu fyrir þetta mikilvæga verkefni og til marks um það fengum við þakklætiskveðju frá SOS í Írak sem sjá má á meðfylgjandi myndum. Þar er þakklæti beint til styrktaraðila SOS á Íslandi.
Aðstoðin í Írak beinist sérstaklega að börnum, ungmennum og konum en einnig hafa munaðarlaus börn fengið ný heimili í SOS Barnaþorpum í landinu.
Helstu verkefnin eru:
-
Áfalla- og sálfræðimeðferð
-
Fjárhagsleg aðstoð
-
Barnvæn svæði þar sem börn geta leikið sér við önnur börn, fengið að borða og tekið þátt í verkefnum á vegum SOS. Einnig hafa samtökin komið upp samfélagsmiðstöðvum fyrir foreldra þar sem þeir geta sótt námskeið, hlustað á tónlist eða spjallað við aðra foreldra.
-
Fræðsla á mannréttindum.
Önnur verkefni neyðaraðstoðarinnar eru dreifing matvæla, heilbrigðisþjónusta, lögfræðiaðstoð, sameining fjölskyldna og menntun.
Nýlegar fréttir
SOS Barnaþorpin styrkja starf fyrir fósturbörn á Íslandi
SOS Barnaþorpin hafa ráðstafað einni milljón króna af erfðagjöf Baldvsins Leifssonar í styrk til Félags fósturforeldra á Íslandi. Tilgangur styrksins er að efla starf félagsins í þágu fósturbarna hér ...
Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeld...