SOS sögur 6.maí 2020

Réði ekki við að vera einstæður faðir

Réði ekki við að vera einstæður faðir

Fyrir rúmu ári sögðum við ykkur frá bosnísku feðgunum Mirza og Haris sem fyrir tilstilli Fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna voru sameinaðir á ný eftir aðskilnað. Starfsfólk SOS í Sarajevó hittir feðgana reglulega og nú getum við kynnst þeim enn betur í meðfylgjandi myndbandi. Í því er rætt við feðgana sem eru nú nánari en nokkru sinni fyrr.

Mirza réði illa við að vera einstæður faðir og beitti Haris ofbeldi og var handtekinn. Hann missti forræðið yfir Haris og útlit var fyrir að drengurinn þyrfti að fara í fóstur því hann átti móður sína ekki að. Fjölskylduefling SOS Barnaþorpanna í Sarajevó kom feðgunum til bjargar og með uppeldisþjálfun og ráðgjöf náði Mirza tökum á föðurhlutverkinu. Haris flutti aftur til föður síns og eftir það eru þeir nánari en nokkru sinni fyrr.

Þakklátur fyrir Fjölskyldueflingu SOS

„SOS Barnaþorpin hjálpuðu mér mjög mikið, sérstaklega af því að það var enginn sem ég gat leitað til. Þökk sé aðstoð þeirra var auðveldara að komast yfir erfiðleikana meðan ástandið var svona. Við erum enn þann dag í dag í sambandi við SOS Barnaþorpin," segir Mirza.

Vill gera pabba stoltan

Haris er stoltur af föður sínum og vill gera föður sinn stoltan af sér. „Hann fórnaði öllu svo ég gæti átt eðlilegt líf sem barn, svo ég finni fyrir öryggi, og ég sé eins og öll önnur börn. Ég vil gera pabba hamingjusaman og að hann sé stoltur af mér," segir Haris.


 

Fjölskyldueflingin í Sarajevó er eitt af 580 slíkum verkefnum SOS Barnaþorpanna um heim allan og þau eru sérsniðin að aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Skjólstæðingar Fjölskyldueflingar SOS á heimsvísu eru alls 395,000 talsins, börn og sárafátækir foreldrar þeirra.

SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna Fjölskyldueflingarverkefni í Eþíópíu þar sem við hjálpum 567 fjölskyldum en í þeim eru 1609 skjólstæðingar.

Fjölskylduvinir SOS Barnaþorpanna ráða sjálfir upphæðinni sem þeir greiða mánaðarlega til að hjálpa fjölskyldunum í okkar verkefnum.

SOS foreldri

Vertu SOS foreldri

SOS foreldri

SOS-foreldri framfleytir barni sem áður var umkomulaust og veitir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.

Þegar þú velur að styrkja „öll börn“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.

Viljir þú styrkja barn í tilteknu landi, t.d. í Króatíu, skrifar þú einfaldlega „Króatía" í dálkinn fyrir athugasemdir.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 3.900 kr á mánuði Styrkja tvö börn 7.800 kr á mánuði Öll börn fyrir 4.500 kr á mánuði