Tvær og hálf milljón króna til stuðnings viðkvæmum barnafjölskyldum í Namibíu
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent 2,5 milljónir króna til verkefnis í fjölskyldueflingu SOS í Namibíu. Verkefnið er unnið til eflingar viðkvæmum barnafjölskyldum og kemur í veg fyrir að þær sundrist. Upphæðin samanstendur af einnar milljónar króna framlagi frá velgjörðafyrirtækinu Lambhúsum og framlögum SOS fjölskylduvina, mánaðarlegra styrktaraðila.
Þessi fjárstuðningur nýtist til að efla vernd barna og styrkja fjölskyldur í Ondangwa-héraði í norðurhluta Namibíu. Markmiðið er að skapa öruggara umhverfi fyrir börn, efla sálræna og félagslega vellíðan þeirra og hjálpa fjölskyldum að byggja upp stöðugri afkomu.
Fjölskylda í Ondangwa-héraði í Namibíu.
Dregur úr unglingsþungunum og eflir þekkingu og sálræna vellíðan
Stuðningurinn gerir SOS Barnaþorpunum kleift að fræða börn, ungmenni, foreldra og starfsfólk um réttindi barna og mikilvægi barnaverndar. Jafnframt er unnið að því að styrkja barnaverndarnefndir í heimabyggðum svo hægt sé að bregðast hraðar og markvissar við þegar börn þurfa á aðstoð að halda.
Verkefnið leggur einnig ríka áherslu á geðrænan og sálfélagslegan stuðning fyrir börn, ungmenni og foreldra eða aðra umönnunaraðila. Þau fá fræðslu um lífsleikni, heilsu og vellíðan, meðal annars um hvernig megi draga úr tíðni unglingaþungana og koma í veg fyrir smitsjúkdóma. Slík fræðsla styrkir börn og ungmenni til að taka upplýstar ákvarðanir um eigið líf og eykur seiglu þeirra til framtíðar.
Þátttakandi í fjölskyldueflingu í Ondangwa-héraði ásamt starfsfólki SOS.
Aðgengi að lánum og fræðslu
Mikilvægur þáttur verkefnisins er jafnframt að efla efnahagslega stöðu fjölskyldna. Foreldrar fá þjálfun í frumkvöðlastarfi og stuðning til að koma af stað tekjuskapandi verkefnum. Einnig voru stofnaðir sparnaðar- og lánahópar í heimabyggðum þar sem fjölskyldur geta lagt fyrir, fengið smálán og stutt hver aðra við að byggja upp sjálfbæran rekstur.
Þegar fjölskyldur verða fjárhagslega sterkari minnkar hættan á að börn þurfi að alast upp aðskilin frá foreldrum sínum eða öðrum nánum aðstandendum. Með því stuðlar verkefnið að því að fleiri börn geti alist upp í öruggu fjölskylduumhverfi og, þegar við á, sameinast fjölskyldum sínum á ábyrgan og öruggan hátt.
Algengt er að þátttakendur í þessum verkefnum fái lán til stofnunar á einhverskonar atvinnurekstri.
Stuðningurinn mun því ekki aðeins bæta líf einstakra barna heldur einnig styrkja nærsamfélagið í heild með öruggara, heilbrigðara og sjálfbærara stuðningsneti fyrir börn og fjölskyldur.
Þessi fjárstuðningur nýtist til að efla vernd barna og styrkja fjölskyldur í Ondangwa-héraði í norðurhluta Namibíu.
Nýlegar fréttir
Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeld...
Svona tuttugufaldast framlagið þitt
Þegar þú gefur fjárframlög til góðgerðarmála verður til það sem kallað er félagsleg arðsemi af framlögunum þínum. Í skýrslunni 75 Years Of Impact sem gerð var í tilefni af 75 ára afmæli SOS Barnaþorpa...