Verðlaunafé Rúriks eflir barnafjölskyldur í sárafátækt
Rúrik Gíslason hefur undanfarin fimm ár unnið alls 5,5 milljónir króna í verðlaunafé í sjónvarpsþáttum í Þýskalandi sem hann hefur látið renna til SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Rúrik hefur í sínum verkefnum alls aflað rúmlega 8,5 milljóna króna sem varið er til stuðnings við barnafjölskyldur í sárafátækt í verkefnum SOS í Malaví og Rúanda.
Rúrik tók nýverið þátt í sjónvarpsþættinum Wunder unserer Erde – Das große GEO Quiz á þýsku sjónvarpsstöðinni RTL, þar sem þekktir einstaklingar keppa í fræðandi spurningakeppni og þrautum. Rúrik keppti ásamt söngkonunni Vanessu Mai, en í þættinum keppa þrjú frægðarpör sín á milli og safna peningum til góðgerðarmála.
Frægð Rúriks í Þýskalandi skilar stuðningi við börn
Rúrik og Vanessa unnu 4.000 evrur í verðlaunafé, sem Rúrik ákvað að láta renna til SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Sjónvarpsstöðin RTL veitti okkur góðfúslegt leyfi til að birta brot úr þættinum. Þar má sjá þáttarstjórnendur spyrja Rúrik út í framburð á orðinu íslenska orðinu „fjörður“ og nafni Vatnajökuls. Að lokum má sjá Rúrik og Vanessu leysa þraut þar sem Vanessa fjarstýrir leikfangabíl eftir leiðbeiningum Rúriks.
Rúrik hefur verið einn af fjórum velgjörðasendiherrum SOS Barnaþorpanna á Íslandi síðan 2018. Óhætt er að segja að starfsemi SOS Barnaþorpanna fyrir umkomulaus börn og brothættar barnafjölskyldur njóti góðs af frægð Rúriks í Þýskalandi.
Rúrik ásamt fjölskyldu í verkefni okkar í Rúanda við upptökur á sjónvarpsþættinum „Rúrik í Rúanda“ sem sýndur verður á RÚV 13. apríl.
Alls 8,5 milljónir vegna verkefna Rúriks
Hann hefur nú unnið alls 5,5 milljónir króna frá árinu 2022 með þátttöku í slíkum sjónvarpsþáttum þar í landi. Þar að auki hefur hann látið ágóða af fleiri verkefnum renna til stuðnings bágstaddra barna í gegnum samtökin, m.a. með framleiðslu á SOS bolnum í samstarfi við 66°Norður árin 2020 og 2021.
Alls gerir þetta 8,5 milljónir króna sem varið er í verkefni okkar í Rúanda og Malaví sem ganga út á að leiða barnafjölskyldur út úr sárafátækt.
Hlutverk velgjörðasendiherra SOS er að vekja athygli á starfi samtakanna fyrir börn án foreldraumsjár og ósjálfbjarga barnafjölskyldur í sárafátækt. Velgjörðasendiherrar SOS á Íslandi eru auk Rúriks, Eva Ruza, Hera Björk Þórhallsdóttir og Eliza Reid.
Sjá einnig:
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Sem SOS-fjölskylduvinur tekurðu fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!