SOS Barnaþorpin fá styrk frá utanríkisráðuneyti Íslands
SOS Barnaþorpin fengu á dögunum styrk frá utanríkisráðuneyti Íslands vegna fjölskyldueflingar í Tulu Moye í Eþíópíu. Styrkurinn er til fjögurra ára og verður framlag ráðuneytisins alls 67.6 milljónir króna.
Á síðasta ári styrkti utanríkisráðuneytið hagkvæmniathugun SOS á Tulu Moye svæðinu og er verkefnið núna beint framhald þeirrar athugunar, enda leiddi hún í ljós mikla þörf fyrir aðgerðir á svæðinu.
Fjölskylduefling SOS Barnaþorpanna í Tulu Moye mun styðja við 1500 börn og forráðamenn þeirra á svæðinu sem berjast við fátækt. Aðalmarkmið verkefnisins er að efla börn, konur og ungmenni svo þau geti tekið fullan þátt í og notið góðs af félagslegum, hagrænum og pólitískum ferlum ásamt því að tryggja velferð og réttindi barna.
Skjólstæðingar verkefnisins fá meðal annars aðgang að heilsugæslu, mataraðstoð, menntun og fræðslu ásamt því að þeir geta fengið vaxtalaust örlán frá SOS Barnaþorpunum. Þá fá allar fjölskyldurnar í verkefninu sólarorkuknúið vatnshreinsitæki sem metur hvenær vatn er orðið drykkjarhæft.
Aðaláhersla samtakanna er að vinna náið með héraðsyfirvöldum, stofnunum, samtökum og öðru heimafólki við að efla hæfni og getu þeirra til að mæta þörfum barna þannig að fjölskyldur geti staðið á eigin fótum og tryggt velferð barna sinna til framtíðar.
SOS Barnaþorpin eru svo sannarlega ánægð með þetta framlag ríkisins og hlakka mikið til komandi tíma.
Nýlegar fréttir
30 ungmenni í Rúanda komin í háskólanám fyrir tilstilli erfðagjafar Baldvins
Alls hafa 30 ungmenni í Rúanda hafið háskólanám með stuðningi erfðagjafar sem SOS Barnaþorpin á Íslandi ráðstöfuðu hluta af árið 2025. Markmiðið er að gera 39 ungmennum, sem notið hafa stuðnings SOS, ...
Ísland styrkir aftur sumarbúðir fyrir stríðshrjáð börn í Úkraínu
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent fjárstuðning til sumarbúða í Úkraínu fyrir börn sem hafa orðið fyrir alvarlegum áhrifum af stríðinu. Þar taka börnin þátt í fjölbreyttu starfi sem hjálpar þeim að v...