Fréttayfirlit 8. febrúar 2019

Mikill árangur á skömmum tíma

Mikill árangur á skömmum tíma

Óvenju mikill árangur hefur náðst á skömmum tíma í Fjölskyldueflingarverkefni sem SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna í Eþíópíu. Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS á Íslandi og Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi, voru í Eþíópíu dagana 1. til 6. febrúar sl.  og  gerðu úttekt á þróun verkefnisins sem er styrkt af Utanríkisráðuneytinu og SOS-fjölskylduvinum hér á landi.

Verkefnið felst í að styðja 566 barnafjölskyldur í sárafátækt til sjálfbærni, m.a. með mataraðstoð, bættri heilbrigðisþjónustu, stuðningi við menntun, uppeldisþjálfun, betra aðgengi að vatni, fjármálaráðgjöf og aðgengi að lánum á lágum vöxtum svo dæmi séu tekin. Lánin eru veitt fjölskyldunum til að efla eigin atvinnurekstur svo sem til kaupa á búnaði og hráefni til framleiðslu á matvöru til sölu. Þá er margt óupptalið.

Verkefnið hófst 1. janúar 2018 og stendur yfir til 31. desember 2021. Umræddar fjöskyldur eru í smábænum Iteya og þorpinu Tero Moye sem er í 20 km fjarlægð. Verkefnið er kennt við eldfjallið Tullumoye sem þýðir „Fjallsgígur“ á íslensku og er í nágrenni Tero Moye.

Ragnar framkvæmdastjóri SOS á Íslandi vígði vatnstankinn opinberlega í tilefni af heimsókninni. Við hlið Ragnars á meðfylgjandi mynd er Sahlemariam Abebe, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Eþíópíu. Ragnar framkvæmdastjóri SOS á Íslandi vígði vatnstankinn opinberlega í tilefni af heimsókninni. Við hlið Ragnars á meðfylgjandi mynd er Sahlemariam Abebe, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Eþíópíu.

Loksins auðvelt að fá vatn

Skólasókn barnanna hefur rokið upp, stofnaðir voru forskólar fyrir 4-6 ára börn, dregið hefur úr vannæringu barna, fjölskyldurnar eru mun meðvitaðri um mikilvægi menntunar, kynjajafnfrétti og meðferð fjármuna svo dæmi séu tekin. Þá hefur verið byggður vatnstankur og vatnsleiðslur lagðar til þorpsins Teremoye. Þar þurfti fólk áður að leggja á sig margra klukkustunda göngu eftir vatni en nú tekur aðeins nokkrar mínútur að bera sig eftir vatninu sem rennur í fjórar vatnsstöðvar í þorpinu.

„Það er ljóst að vel er haldið utan um verkefnið af stjórnanda þess á staðnum og þakklæti fólksins er ótvírætt. Við heimsóttum nokkrar af þessum fjölskyldum, ræddum við þær og kynntum okkur bágbornar aðstæður þeirrar. Það fór ekki á milli mála að fólkið er þakklátt okkur Íslendingum fyrir aðstoðina. Þessi heimsókn staðfesti fyrir okkur að hjálp okkar hefur borið mikinn árangur og eftir að gera áfram.“ segir Hans Steinar, upplýsingafulltrúi.

Nýlegar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins
25. júl. 2024 Almennar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins

Börnin 68 sem flutt voru frá SOS barnaþorpinu í Rafah á Gaza til barnaþorpsins í Bethlehem á Vesturbakkanum í mars sl. eru komin aftur í skóla. Vegna stríðsins féll skólaganga þeirra niður í átta mánu...

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið
3. júl. 2024 Almennar fréttir

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið

Vegna aukinnar þarfar á stuðningi við börn í SOS barnaþorpum hefur sú breyting nú tekið gildi að tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið. Að meðaltali eru um fimm til sex SOS-foreldrar um hvert sty...