Frétta­yf­ir­lit 23. júní 2023

Enn fjölg­ar sjálf­stæð­um barna­fjöl­skyld­um í verk­efni okk­ar í Eþí­óp­íu

Enn fjölgar sjálfstæðum barnafjölskyldum í verkefni okkar í Eþíópíu

Senn líð­ur að lok­um fjöl­skyldu­efl­ing­ar SOS Barna­þorp­anna í Eþí­óp­íu sem hófst árið 2018 og fjár­mögn­uð er af SOS á Ís­landi. Nú hafa 260 barna­fjöl­skyld­ur ris­ið upp úr sára­fá­tækt og eru farn­ar að standa á eig­in fót­um og fleiri munu út­skrif­ast fyr­ir verk­efna­lok í lok þessa árs.

Verk­efna­svæði fjöl­skyldu­efl­ing­ar­inn­ar í Eþí­óp­íu er í bæn­um Eteya og ná­grenni sem nefnt er Tulu-Moye. Skjól­stæð­ing­ar þess eru for­eldr­ar yfir 1.600 barna sem voru svo illa stadd­ir í upp­hafi verk­efn­is­ins að þeir gátu ekki séð fyr­ir börn­um sín­um. Markmið verk­efn­is­ins er að koma í veg fyr­ir að fjöl­skyld­ur leys­ist upp af þess­um völd­um með þeim tækj­um og tól­um sem þekkt eru í sams­kon­ar verk­efn­um SOS um all­an heim.

Á ár­inu 2022 voru alls 512.500 skjól­stæð­ing­ar í 768 verk­efn­um í fjöl­skykldu­efl­ingu SOS Barna­þorp­anna í heim­in­um. Þrjú þeirra verk­efna eru á veg­um SOS á Ís­landi. Hin tvö verk­efn­in eru ný­lega haf­in í Mala­ví og Rú­anda.

Svona gengur fjölskylduefling SOS fyrir sig

Sam­fé­lags­legt stuðn­ingsnet

For­eldr­arn­ir eru um­vafð­ir víð­tæku sam­fé­lags­legu stuðn­ingsneti sem ger­ir það að verk­um að þeir fara að afla sér tekna og fjöl­skyld­urn­ar verða sjálf­bær­ar. Börn­in fá því grunn­þörf­um sín­um mætt og þau geta hald­ið áfram námi. For­eldr­arn­ir hafa til­eink­að sér heil­brigð­ar upp­eldisað­ferð­ir með því að sækja nám­skeið þar að lút­andi og hef­ur vit­und for­eldra stór­auk­ist um ör­yggi og vernd barna.

Víta­hring­ur­inn rof­inn

Þetta er ein­mitt lyk­ill­inn að fram­tíð­inni fyr­ir börn­in, að þau geti búið áfram hjá for­eldr­um sín­um og stund­að nám. Það er svona sem við rjúf­um víta­hring sára­fá­tækt­ar, að vera til stað­ar fyr­ir þess­ar fjöl­skyld­ur og fylgj­ast með þeim taka fram­tíð­ina í sín­ar hend­ur, fara að afla sér tekna og verða sjálf­bær­ar.

Efl­ir líka nærsam­fé­lag­ið

Verk­efn­ið í Eþópíu efl­ir ekki bara fjöl­skyld­urn­ar sem í því eru held­ur líka inn­við­ina í nærsam­fé­lag­inu. Opn­að­ur var leik­skóli sem nýt­ist 223 börn­um for­eldra í krefj­andi að­stæð­um og börn í fá­tæk­um fjöl­skyld­um fengu náms­gögn. Fjöl­skyldu­efl­ing­in stóð af sér Covid-19 og náði að lág­marka áhrif far­ald­urs­ins á fjöl­skyld­urn­ar á svæð­inu.

Zemzen er húsmóðir í Eteya sem aflar tekna með rekstri verslunar við heimili sitt. Zemzen er útskrifuð úr fjölskyldueflingunni og getur nú séð fyrir börnum sínum. Zemzen er húsmóðir í Eteya sem aflar tekna með rekstri verslunar við heimili sitt. Zemzen er útskrifuð úr fjölskyldueflingunni og getur nú séð fyrir börnum sínum.

Úr sára­fá­tækt í múr­steina­fram­leiðslu

Med­ina er ein­stæð fjög­urra barna móð­ir í Eteya og er ein af þeim sem hafa út­skrif­ast úr fjöl­skyldu­efl­ing­unni. Eft­ir að eig­in­mað­ur Med­inu lést stóð hún eft­ir ein með börn­in og eng­ar tekj­ur. Árið 2018 var staða fjöl­skyld­unn­ar orð­in svo al­var­leg að börn­in fengu ekki grunn­þörf­um sín­um mætt og þau gátu auk þess ekki sótt skóla. Med­ina fékk þá inn­göngu í fjöl­skyldu­efl­ingu SOS Barna­þorp­anna sem SOS á Ís­landi fjár­magn­ar og þrem­ur árum síð­ar hafði henni held­ur bet­ur tek­ist að snúa tafl­inu við sér í vil.

Sjáðu myndband með Medinu.

Lesa nánar hér: Úr sára­fá­tækt í múr­steina­fram­leiðslu

Sjá einnig: 270 fjöl­skyld­ur laus­ar úr viðj­um fá­tækt­ar

Fjölskylduefling SOS í Eteya og Tylu-Moye er fjármögnuð af SOS Barnaþorpunum á Íslandi með stuðningi SOS-fjölskylduvina og Utanríkisráðuneytisins.

SOS fjöl­skyldu­vin­ur

SOS fjöl­skyldu­vin­ur

SOS fjölskylduvinur

SOS-fjöl­skyldu­vin­ir styrkja fjöl­skyldu­efl­ingu SOS. Sem SOS-fjöl­skyldu­vin­ur kem­urðu í veg fyr­ir að börn verði van­rækt og yf­ir­gef­in. Í fjöl­skyldu­efl­ingu SOS tök­um við fyrstu skref­in með fjöl­skyld­um út úr sára­fá­tækt svo þær get­ið stað­ið á eig­in fót­um og veitt börn­un­um bjarta fram­tíð. Þú ákveð­ur styrkt­ar­upp­hæð­ina og færð reglu­lega upp­ýs­inga­póst um verk­efn­in sem við fjár­mögn­um.

Mán­að­ar­legt fram­lag
1.500 kr 2.500 kr 5.000 kr 7.500 kr