Fréttayfirlit 13. febrúar 2019

Sjö manna fjölskylda í 10 fm íbúð

Sjö manna fjölskylda í 10 fm íbúð


Emebet og eiginmaður hennar Behailu búa ásamt fimm börnum sínum í um það bil 10-15 fermetra húsi í smábænum Iteye í Eþíópíu. Þau eru ein af 566 fjölskyldum í fjölskyldueflingu sem SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna og hjálpa yfir 1600 börnum sem eru í þessum fjölskyldum. Utanríkisráðuneytið styrkir verkefnið að stærstum hluta ásamt Fjölskylduvinum SOS á Íslandi.

Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi SOS á Íslandi, heimsótti fjölskyldu Emebet og tók hana tali.

Eiginmaðurinn sjónskertur

Behailu, eiginmaður Emebet, er sjónskertur og getur því aðeins að takmörkuðu leyti tekið þátt í að framfleyta fjölskyldu sinni. Emebet starfaði áður fyrir aðrar fjölskyldur við að baka þjóðlegu pönnukökurnar „injera“ sem heimafólk borðar með nær öllum mat en nú starfar hún sjálfstætt. SOS skaffaði henni yfir 100 kg af teff grjónum til injera-gerðar sem hún selur á markaði. Áður gátu börnin ekki sótt skóla að fullu því þau þurftu að afla tekna fyrir heimilið. En nú er staða fjölskyldunnar mun betri.

Ykkur að þakka að við getum sent börnin í skóla

„Með tilkomu fjölskyldueflingar SOS þurfa börnin ekki lengur að vinna með skólanum til að hjálpa við framfærslu heimilisins. Börnin kunna vel við sig í skólanum og vegna ykkar aðstoðar hafa þau nú fengið skólabúninga og námsgögn. Það er ykkur að þakka að við getum sent börnin í skóla. -- Við sjáum fram á bjarta framtíð ef þið haldið áfram að styðja okkur,“ segir Emebet.

Eldri sonurinn, Yohanis, náði ekki nógu góðum einkunnum til að komast í framhaldsskóla en fyrir tilstilli fjölskyldueflingar SOS hefur honum boðist starfsmenntun í iðnnámi. Þannig getur hann aflað tekna fyrir heimilið meðan hann er í launuðu starfsnámi.

Löggur, læknar og flugmaður

Börnin eru með skýr markmið fyrir framtíðina. Þau voru spurð hvað þau ætli að verða þegar þau verða stór.

„Mig langar að verða flugmaður og líka að læra að tala ensku eins vel og þú.“ segir Yohanis. Systur hans Bereket og Minilik ætla að verða læknar, hin fjögurra ára Mezgiboshal ætlar að verða lögga eins og 12 ára bróðir hennar, Tekle. En af hverju lögga?

„Af því að það eru svo margir þjófar í landinu okkar sem ég ætla að handtaka.“ segir Tekle við mikinn fögnuð spyrilsins, Hans Steinars frá Íslandi, sem varð fyrir því óláni að símanum hans var stolið í höfuðborginni Addis Ababa. „Geturðu hjálpað mér að finna símann minn? Honum var stolið.“ -„Já!“ svaraði Tekle að bragði.

Nýlegar fréttir

SOS á Íslandi tryggir umönnun barna í Esvatíní
22. maí 2026 Almennar fréttir

SOS á Íslandi tryggir umönnun barna í Esvatíní

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að styðja við SOS Barnaþorpin í Esvatíní með 15 milljónum króna svo tryggja megi umönnun barna í þeirra umsjá. Fjármunirnir eru gjafir frá einstaklingum hér á la...

841 króna af hverju 1.000 króna framlagi skilar sér til hjálparstarfsins
21. maí 2026 Almennar fréttir

841 króna af hverju 1.000 króna framlagi skilar sér til hjálparstarfsins

Ársskýrsla SOS Barnaþorpanna fyrir árið 2025 hefur nú verið birt eftir aðalfund samtakanna 20. maí sl. Þar kemur m.a. fram að hlutfall stjórnunarkostnaður er áfram með því allra lægsta sem gerist eða ...