Fréttayfirlit 9. janúar 2019

Þökkuðu Jóni innilega fyrir peningagjöfina

Þökkuðu Jóni innilega fyrir peningagjöfina


Fagnaðarfundur var í vikunni þegar einn af okkar dyggustu stuðningsmönnum, Jón Pétursson, kom til okkar á skrifstofuna í Hamraborg í Kópavogi til að eiga myndsímtal við tvö fyrrverandi styrktarbörn sín í Brasilíu. Um er að ræða systkinin Graciane og Leomar sem fengu á dögunum afhenda peningagjöf frá Jóni, fjórar milljónir króna.

Jón byrjaði að styrkja systkinin árið 1991 þegar Graciane var tveggja ára og bróðir hennar Leomar var 5 ára. Á símafundinum lýstu þau hjartnæmu þakklæti til Jóns fyrir peningagjöfina sem kemur sér afar vel því þau standa bæði í íbúðarkaupum. Þau sögðu Jóni að hann væri ekki bara guðfaðir þeirra heldur líka þeirra helsta föðurímynd.

Einstök stund sem Jón átti með fyrrverandi styrktarbörnum sínum í Brasilíu. Þessi fjarfundur reyndist vera þeirra síðustu samskipti því Jón lést skömmu síðar. Einstök stund sem Jón átti með fyrrverandi styrktarbörnum sínum í Brasilíu. Þessi fjarfundur reyndist vera þeirra síðustu samskipti því Jón lést skömmu síðar.

Grét af gleði þegar hún sá Jón

Jón heimsótti barnaþorpið þeirra í Santa Maria tvisvar í kringum aldamótin og dvaldi þá hjá forstöðumanni þorpsins sem var viðstaddur símafundinn nú í vikunni. Það var líka eiginkona forstöðumannsins og grét hún svo mikið af gleði við að sjá Jón að hún kom varla upp orði.

Jón styrkti SOS Barnaþorpin alls um 10 milljónir króna með einni greiðslu nú í lok ársins 2018. Graciane og Leomar fá af þeirri upphæð áðurnefndar fjórar milljónir króna en afgangurinn skiptist á milli barnaþorpsins í Santa Maria og SOS á Íslandi.

Viðtal við Jón

Ítarlegt viðtal var við Jón í fréttablaði SOS Barnaþorpanna sem hægt er að nálgast rafrænt hérna.

Sjá líka: Jón gaf 10 milljónir: „Þetta er svo gefandi.“

Nýlegar fréttir

Skrifstofan opnar aftur
2. nóv. 2025 Almennar fréttir

Skrifstofan opnar aftur

Skrifstofa SOS Barnaþorpanna í Hamraborg 1 í Kópavogi opnar aftur mánudaginn 3. nóvember. Reykskemmdir urðu á skrifstofu okkar af völdum eldsvoða í byggingunni og þurftum við af þeim völdum að loka sk...

39 þolendur fengu stuðning og sex gerendur voru kærðir
22. okt. 2025 Almennar fréttir

39 þolendur fengu stuðning og sex gerendur voru kærðir

Verkefni SOS Barnaþorpanna í Tógó sem fjármagnað er af Íslendingum, „Efling baráttunnar gegn kynferðislegri misnotkun á börnum í Ogou-héraði“, hefur skilað áþreifanlegum árangri. 39 þolendur fengu stu...