Frétta­yf­ir­lit 27. júní 2019

15 millj­óna króna arfi til SOS hef­ur ver­ið ráð­staf­að

15 milljóna króna arfi til SOS hefur verið ráðstafað


Þann 1. júlí 1993 gekk rúm­lega fimm­tug kona, Anna Krist­ín Ragn­ars­dótt­ir, inn á skrif­stofu sýslu­manns­ins í Reykja­vík. Hún var ógift og barn­laus en hafði styrkt mun­að­ar­laus­an dreng í Asíu í gegn­um SOS Barna­þorp­in. Þar sem hún átti enga skyldu­erf­ingja gerði hún erfða­skrá og ráð­staf­aði eig­um sín­um þannig sjálf.

Um­rædd­an dag í júlí 1993 mætti hún sem sagt til sýslu­manns­ins með erfða­skrá þar sem skýrt var kveð­ið á um að eign­ir henn­ar, fast­ar og laus­ar (að und­an­skyldu inn­búi og per­sónu­leg­um mun­um) skyldu renna til SOS Barna­þorp­anna og nýt­ast í þágu barna. Erfða­skrá­in var skráð hjá sýslu­manni og var í hans vörslu þar til Anna lést árið 2010. Í kjöl­far­ið fengu SOS Barna­þorp­in litla íbúð henn­ar á Spáni og lausa­fé, sam­tals um 15 millj­ón­ir króna.

Anna ósk­aði eft­ir því að stofn­að­ur yrði sjóð­ur í henn­ar nafni, hann ávaxt­að­ur og út­hlut­að úr hon­um eft­ir ákvörð­un­um stjórn­ar SOS í þágu barna. Það hef­ur nú ver­ið gert í þrem­ur út­hlut­un­um í sam­ræmi við ósk­ir henn­ar eins og þær koma fram í erfða­skránni.

    1. 1,5 m.kr. var var­ið í að hjálpa sára­fá­tæk­um barna­fjöl­skyld­um í Ník­aragva til sjálfs­hjálp­ar í gegn­um Fjöl­skyldu­efl­ingu SOS þar í landi.
    2. 1,7 m.kr. var var­ið til lóða­kaupa og bygg­ing­ar á húsi fyr­ir ein­stæða sex barna móð­ur í Gín­eu Bis­sá. Hún var skjól­stæð­ing­ur Fjöl­skyldu­efl­ing­ar SOS.
    3. Að lok­um var síð­ustu 10 millj­ón­un­um út­hlut­að í fjár­mögn­un á bygg­ingu heim­il­is fyr­ir SOS mæð­ur á eft­ir­laun­um í Hojai á Indlandi. Með þessu fram­lagi vilja SOS Barna­þorp­in stuðla að vel­ferð þeirra fyrr­ver­andi SOS mæðra sem þar fá heim­ili á efri árum sín­um og sýna SOS-mæðr­um sem nú starfa við upp­eldi barna í barna­þorp­inu að þær þurfi ekki að hafa áhyggj­ur af hús­næð­is­mál­um eft­ir að þær hætta að vinna. Lang­flest­ir styrktar­for­eldr­ar á Ís­landi styrkja börn í barna­þorp­um á Indlandi. 

Anna Krist­ín er ekki ein um að vilja láta skjól­stæð­inga SOS Barna­þorp­anna njóta góðs af ævi­starfi sínu. Mik­ill fjöldi ein­stak­linga um all­an heim ánafn­ar SOS eign­ir sín­ar að hluta til eða öllu leyti eft­ir sinn dag og þannig get­um við hjálp­að mun fleiri börn­um en ella. Þannig ræt­ast líka ósk­ir þess sem erfða­skrána gerði.

Það er auð­velt að gera erfða­skrá og bend­um við áhuga­söm­um á að hafa sam­band við sýslu­mann eða lög­mann. SOS Barna­þorp­in á Ís­landi geta bent á lög­menn sem að­stoða við gerð erfða­skráa.

Finna má ítarlegar upplýsingar um fyrirkomulag erfðagjafa hér á heima­síðu okk­ar.

Ný­leg­ar frétt­ir

855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið
23. maí 2025 Al­menn­ar frétt­ir

855 krón­ur af hverju þús­und króna fram­lagi renna í hjálp­ar­starf­ið

Árs­skýrsla SOS Barna­þorp­anna fyr­ir árið 2024 hef­ur nú ver­ið birt eft­ir að­al­fund sam­tak­anna 19. maí sl. Þar kem­ur m.a. fram að hlut­fall rekstr­ar­kostn­að­ar er með því allra lægsta sem ger­ist eða að­eins 1...

23 milljónum króna af erfðagjöf ráðstafað til háskólamenntunar
22. maí 2025 Erfða­gjaf­ir

23 millj­ón­um króna af erfða­gjöf ráð­staf­að til há­skóla­mennt­un­ar

SOS Barna­þorp­in á Ís­landi hafa ráð­staf­að 23 millj­ón­um króna af erfða­gjöf til há­skóla­mennt­un­ar ung­menna í Afr­íku, nán­ar til­tek­ið í Rú­anda. Ráð­stöf­un­in er sam­kvæmt ósk­um arf­leif­anda, Bald­vins Leifs­son­ar...