Fréttayfirlit 6. mars 2020

Stjórnvöld mega ekki snúa baki við börnum

Greece_Lesbos_Moria camp_Giorgos MoutafisVegna vaxandi ólgu við landamæri Grikklands og Tyrklands kalla Alþjóðasamtök SOS Barnaþorpanna eftir tafarlausri vernd barna og fjölskyldna þeirra.

„Við fordæmum allt ofbeldi og hvetjum ráðafólk til að vernda börn á flótta frá heimilinum sínum fyrir ofbeldi og tryggja þeim öryggi og viðeigandi umönnun. Stjórnvöld mega ekki snúa baki við börnum,“ segir Steffen Braasch, starfandi aðalframkvæmdastjóri alþjóðasamtaka SOS Barnaþorpanna.

Ávallt skal koma fram við börn eins og börn, fyrst og fremst,“ segir í yfirlýsingu frá SOS Barnaþorpunum. Flóttamannabúðir eru aldrei rétti staðurinn fyrir barn. Þjóðir eiga að útvega gæðaumönnun byggða á samfélagslegum grundvelli sem felur í sér lykilþjónustu eins og heilbrigðisumönnun, menntun og sálfræðilegan stuðning.

Greece_Lesbos_Moria camp_Giorgos MoutafisBörn á ekki að skilja að frá foreldrum sínum nema það sé í besta hag barnsins og þau skal aldrei hafa í haldi.

SOS Barnaþorpin hjálpa um 200 börnum á hverjum degi í Kara Tepe flóttamannabúðunum á grísku eyjunni Lesbos. Starf samtakanna hefur riðlast vegna ástandsins síðustu daga eins og hjá öðrum hjálparsamtökum. Starfsemin er hins vegar komin í samt horf núna og heldur starfsfólk okkar áfram að veita sálfræði- og menntaaðstoð.

Fyrir utan starfsstöðvar SOS Barnaþorpanna í búðunum á Lesbos reka samtökin miðstöðvar í Aþenu, á Krít og Þessalóniku. Þessar miðstöðvar SOS hjálpa um 400 flóttamönnum og innflytjendum í hverjum mánuði óháð uppruna fólksins.

SOS verkefni á þessum slóðum útvega einnig gæðaumönnun í hlýlegu umhverfi fyrir umkomulaus börn.


Flóttabangsi Ungmennaráðs SOS á Íslandi

Íslendingar geta styrkt flóttamannaaðstoð SOS Barnaþorpanna í Grikklandi. Með kaupum á Flóttabangsanum hjálpar þú flóttabörnum sem koma til Grikklands að aðlagast nýjum aðstæðum og veitir þeim tækifæri á menntun og betra lífi.

Nýlegar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins
25. júl. 2024 Almennar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins

Börnin 68 sem flutt voru frá SOS barnaþorpinu í Rafah á Gaza til barnaþorpsins í Bethlehem á Vesturbakkanum í mars sl. eru komin aftur í skóla. Vegna stríðsins féll skólaganga þeirra niður í átta mánu...

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið
3. júl. 2024 Almennar fréttir

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið

Vegna aukinnar þarfar á stuðningi við börn í SOS barnaþorpum hefur sú breyting nú tekið gildi að tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið. Að meðaltali eru um fimm til sex SOS-foreldrar um hvert sty...