Fréttayfirlit 25. janúar 2016

Starfsmenn Marel söfnuðu 10,5 milljónum króna

Starfsmenn Marel söfnuðu með alþjóðlega fjáröflunarátaki sínu, Tour de Marel, 10,5 milljónum króna handa SOS Barnaþorpunum á Fílabeinsströndinni. Upphæðin verður notuð til að byggja bókasafn sem nýtast mun 4.000 börnum í Yamoussoukro á Fílabeinsströndinni og bæta aðstæður þeirra til náms.

Tour de Marel er sameiginlegt fjáröflunarátak allra starfsmanna Marel á yfir 30 starfsstöðvum en þetta er í þriðja sinn sem starfsmenn safna fyrir SOS Barnaþorpin. Þannig hefur Marel safnað 33 milljónum króna sem hafa verið notaðar til að byggja SOS skóla og nú bókasafn.

tour_de_marel_2015_01.jpgÁtakið fór fram síðasta haust en starfsmenn Marel á Íslandi, ásamt vinum og vandamönnum, hlupu eða hjóluðu vegalengdina frá Íslandi til Fílabeinsstrandarinnar á einum sólahring og söfnuðu áheitum til styrktar SOS Barnaþorpunum þar í landi. Alls eru 6.500 km frá Íslandi til Fílabeinsstrandarinnar og þegar upp var staðið höfðu starfsmenn hlupið og hjólað samtals 6.578 km á einum sólarhring.

Starfsmennirnir nutu aðstoðar vina og vandamanna við verkefnið. Þá tóku Björk Kristjánsdóttir Íslandsmeistari í fjall- og götuhjólreiðum og Óskar Ómarsson margfaldur gullverðlaunahafi úr hinum ýmsu hjólakeppnum þátt en einnig komu fjöldamargir hlaupa- og hjólahópar við í Austurhrauninu til að leggja verkefninu lið. Þá var einnig haldin fjölskylduhátíð í tengslum við hlaupið þar sem m.a. var skipulögð styttri hlaupaleið fyrir börnin.

Nýlegar fréttir

Þörf á auknum stuðningi við SOS í Úkraínu
20. mar. 2023 Almennar fréttir

Þörf á auknum stuðningi við SOS í Úkraínu

Stríðið í Úkraínu heldur áfram að koma niður á milljónum barna, grundvallarréttindum þeirra og sundrar fjölskyldum. Við viljum því vekja athygli á að söfnin SOS Barnaþorpanna á Íslandi fyrir stuðningi...

Opnað á brottvikningu Rússlands
8. mar. 2023 Almennar fréttir

Opnað á brottvikningu Rússlands

Á fundi alþjóðastjórnar SOS Barnaþorpanna þann 2. mars var ákveðið að hefja undirbúning að tímabundinni brottvikningu SOS Barnaþorpanna í Rússlandi úr alþjóðasamtökunum. Þá hafa öll framlög til SOS Ba...