Fréttayfirlit 28. ágúst 2026

Starf SOS heldur áfram á Gaza við erfiðar aðstæður

Starf SOS heldur áfram á Gaza við erfiðar aðstæður

Starf SOS Barnaþorpanna heldur áfram á Gaza í Palestínu við gríðarlega erfiðar aðstæður. Maha Lolas, tengiliður styrktaraðila hjá SOS Barnaþorpunum í Palestínu, er í nánum samskiptum við starfsfólkið á Gaza og hún sendi okkur þessa frásögn sína til að deila með íslenskum styrktaraðilum.

Maha Lolas skrifar frá Palestínu. Maha Lolas skrifar frá Palestínu.

Ég heiti Maha og starfa sem tengiliður styrktaraðila hjá SOS Barnaþorpunum í Palestínu. Þessi frásögn hefur verið þýdd á íslensku af samstarfsfólki mínu hjá SOS Barnaþorpunum á Íslandi.

Búðir SOS Barnaþorpanna á miðju Gaza-svæðinu veita börnum og fjölskyldum áfram umönnun og skjól. SOS Barnaþorpin gera allt sem í þeirra valdi stendur til að aðstoða eins marga og mögulegt er, en þörfin fyrir aðstoð er meiri en búðirnar og starfsfólk þeirra ráða við.

Fjöldi fólks á svæðinu hefur ekki einu sinni tjöld til að sofa í og leitar til SOS Barnaþorpanna eftir aðstoð og mat. Þetta kemur fram í upplýsingum frá samstarfsfólki okkar sem er í daglegu sambandi við starfsfólkið í búðunum.

Þótt búðir SOS Barnaþorpanna séu fullnýttar heldur starfsfólkið áfram að taka á móti fylgdarlausum börnum. Maha Lolas skrifar frá SOS í Palestínu.

Snákar komast inn í tjöldin

Börnin dvelja í búðunum á meðan reynt er að hafa uppi á foreldrum þeirra eða öðrum ættingjum. Þegar tekist hefur að sameina börnin fjölskyldum sínum halda SOS Barnaþorpin í Palestínu áfram að styðja við þau í gegnum neyðaraðstoð okkar á Gaza, meðal annars með fjárhagsaðstoð og stuðningi við andlega líðan. Við vinnum einnig með öðrum hjálparsamtökum að því að styðja fjölskyldur sem við höfum ekki bolmagn til að aðstoða beint.

Börn og fullorðnir í búðunum hafa enn aðgang að hreinu drykkjarvatni og mat, en óvíst er hversu lengi verður hægt að koma nýjum birgðum þangað. Öfgakennt veðurfar gerir lífið á Gaza enn erfiðara. Byggingar víða um Gaza hafa eyðilagst og því eiga margir ekki annað skjól en tjöld. Þau veita litla vörn gegn síbreytilegum veðuraðstæðum og þá sérstaklega miklum sumarhitum.

Rusl safnast einnig upp og með hækkandi hita fjölgar snákum, rottum og skordýrum sem leita inn í tjöldin og auka hættuna á sýkingum. Maha Lolas skrifar frá SOS í Palestínu.
Frá SOS búðum á Gaza. Frá SOS búðum á Gaza.

En mig langar að deila með þér jákvæðri sögu.

Í búðunum höfum við reist stórt tjald þar sem við starfrækjum skóla fyrir hundruð barna. Þar eru bækur og blýantar og börnin fá tækifæri til að læra og skrifa á ný. Þau eru svo glöð að vera komin aftur í skólann að þau vilja alltaf vera aðeins lengur. Þegar börnin verða hrædd erum við með ýmsar tómstundir til að dreifa huga þeirra. Við fáum t.d. stundum trúða til að koma og skemmta þeim.

Stuðningur þinn er lykillinn að því að allt þetta sé mögulegt. Hann hjálpar okkur að tryggja að börn í Palestínu fái áfram góða umönnun, menntun og sálfræðistuðning svo þau geti þroskast og dafnað – jafnvel á erfiðustu tímum. Framundan er margra ára uppbyggingarstarf og við gefum hvergi eftir.

Kærar þakkir fyrir stuðninginn,
Maha Lolas, tengiliður styrktaraðila hjá SOS Barnaþorpunum í Palestínu.

Trúður skemmtir börnunum á Gaza. Trúður skemmtir börnunum á Gaza.
SOS foreldri barna á Gaza

SOS foreldri barna á Gaza

SOS foreldri barna á Gaza

Sem SOS foreldri barna á Gaza styrkir þú SOS barnaþorpið í Rafah á Gaza í Palestínu með mánaðarlegu framlagi sem nemur 4.500 krónum. Framlagi þínu er varið í daglegan rekstur svo tryggja megi öryggi og velferð þeirra barna sem eru á framfæri barnaþorpsins og fer þeim nú fjölgandi.

Mánaðarlegt framlag
4.500 kr