Fréttayfirlit 30. apríl 2019

SOS Barnaþorpin 70 ára



SOS Barnaþorpin, stærstu sjálfstæðu barnahjálparsamtök í heimi, fagna um þessar mundir 70 ára afmæli. SOS Íslandi fagnar á sama tíma 30 ára starfsafmæli. Samtökin voru stofnuð formlega 25. apríl 1949 til að bregðast við mikilli neyð eftir seinni heimsstyrjöldina sem skildi eftir sig mikinn fjölda munaðarlausra barna.

Höfum haft jákvæð áhrif á 13 milljónir mannslífa

Í nýútkominni skýrslu kemur fram að í sjö áratugi hafi SOS Barnaþorpin hjálpað fjórum milljónum barna um allan heim með því að veita þeim fjölskyldu og heimili og með fjölskyldeflingu. Börn þeirra og barnabörn hafa notið góðs af og er niðurstaða skýrslunnar að SOS Barnaþorpin hafi haft jákvæð áhrif á 13 milljónir mannslífa á 70 árum. Börnunum er forðað frá fátækt og ofbeldi, þau fá gæðamenntun, eiga möguleika á góðri vinnu og búa við jafnrétti.

Þúsund krónur verða að fimm þúsund

Ávinningurinn af starfi SOS Barnaþorpanna er mikill og leiða útreikningar fyrir skýrsluna í ljós að fyrir hverjar eitt þúsund krónur sem almenningur leggur til samtakanna fær samfélagið 5 þúsund krónur til baka. Skýrslan var unnin í tilefni 70 ára afmælisins og ber yfirskriftina „70 Years of Impact“ eða „Áhrif í 70 ár".

74 þúsund Íslendingar

SOS Barnaþorpin Íslandi fagna á sama tíma 30 ára starfsafmæli. Um 74 þúsund Íslendingar hafa á þessum tíma gefið framlög til samtakanna. 29 þúsund Íslendingar gáfu framlög á árinu 2018.

Svona höfum við haft áhrif á heiminn í 70 ár.

Nýlegar fréttir

Snerpa styrkir íþróttaiðkun barna í SOS Barnaþorpunum í Bosníu
19. ágú. 2025 Almennar fréttir

Snerpa styrkir íþróttaiðkun barna í SOS Barnaþorpunum í Bosníu

Íslenska fótboltaakademían Snerpa coaching hefur skrifað undir samning við SOS Barnaþorpin á Íslandi þess efnis að akademían styrkir íþróttaiðkun barna hjá SOS Barnaþorpunum í Bosníu.

500 dagar frá dramatískri rýmingu barnaþorpsins á Gaza
24. júl. 2025 Almennar fréttir

500 dagar frá dramatískri rýmingu barnaþorpsins á Gaza

Í dag eru sléttir 500 dagar liðnir síðan SOS Barnaþorpin í Palestínu þurftu að rýma SOS barnaþorpið í Rafah á Gaza. Frá árinu 2000 höfðu yfirgefin og munaðarlaus börn fengið þar nýtt heimili, fjölskyl...