Fréttayfirlit 18. desember 2025

Skrifstofa SOS lokuð milli jóla og nýárs

Skrifstofa SOS lokuð milli jóla og nýárs


Skrifstofa SOS Barnaþorpanna á Íslandi verður lokuð milli jóla og nýárs. Við lokum þriðjudaginn 23. desember kl. 15:30 og opnum aftur þriðjudaginn 2. janúar kl. 9. Hér eru nokkur atriði sem við viljum benda á í tilefni af jólalokuninni og viljum við vekja sérstaka athygli á lokafresti fyrir greiðslur framlaga með kröfu í heimabanka í tengslum við skattafrádrátt, sem lesa má um hér neðar.

Nýir SOS foreldrar, gjafabréf og minningarkort

Upplýsingamöppur nýrra SOS-foreldra verða póstlagðar strax eftir áramótin. Gjafabréf og minningarkort verður áfram hægt að panta hér á heimasíðunni okkar. Kaupendur gjafabréfa fá þau send samstundis í tölvupósti. Minningarkort verða póstlögð 2. janúar.

Þurfirðu að koma á framfæri erindi til okkar bendum við á netfangið sos@sos.is og við svörum þér strax og skrifstofan opnar aftur.

Við minnum jafnframt á Mínar síður þar sem SOS-foreldrar geta skoðað bréfin sín frá barnaþorpunum, gefið styrktarbörnum sínum peningagjafir á framtíðarreikning, skoðað yfirlit yfir styrktargreiðslur sínar, uppfært greiðsluupplýsingar og fleira.

Vegna skattafrádráttar fyrir framlög til SOS 2025

Styrktaraðilar SOS Barnaþorpanna fá skattafrádrátt vegna framlaga til samtakanna.  Ef þú ætlar að gefa stakt framlag sem þú vilt að nái til skatafrádráttar á næsta skattaframtali þarf greiðsla framlagsins að vera framkvæmd í síðasta lagi 30. desember 2025.

að þýðir að ef þú skráir þig fyrir stöku framlagi eða sem SOS-neyðarvinur sem greiðist með kröfu í heimabanka þarf skráning framlagsins að vera gerð í síðasta lagi fyrir lok dags 22. desember. Það er vegna þess að kröfurnar verða stofnaðar og sendar í heimabankann þann 23. desember. 

Þetta á ekki við um greiðslur með kreditkorti en þær færast til bókar strax við framkvæmd greiðslu.

Sjá einnig: Skattaafsláttur vegna framlaga til SOS

Kærar þakkir fyrir stuðninginn við börnin á árinu sem er að liða og við sendum okkar bestu óskir um gleðileg jól og nýtt ár.

SOS foreldri

Vertu SOS foreldri

SOS foreldri

SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.

Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 4.500 kr Styrkja tvö börn 9.000 kr Barnaþorp fyrir 4.500 kr