Rúrik Gíslason nýr sendiherra SOS
Rúrik Gíslason landsliðsmaður í fótbolta er nýr velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna á Íslandi og skrifaði hann undir samning þess efnis í dag. Með því vill Rúrik leggja sitt af mörkum við að vekja athygli á starfi samtakanna sem útvega munaðarlausum og yfirgefnum börnum heimili og fjölskyldu.
Rúrik er þrítugur og á að baki 50 A-landsleiki í fótbolta fyrir Ísland. Hann slæst í hóp með fríðu föruneyti þriggja annarra velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna á Íslandi en fyrir í því teymi eru forsetafrúin Eliza Reid, söngkonan og fasteignasalinn Hera Björk Þórhallsdóttir og ævintýrakonan Vilborg Arna Gissurardóttir.
„Ég hlakka til að taka þátt í þessu frábæra starfi hjá SOS Barnaþorpunum og vekja athygli á samtökunum. Það er mér mikill heiður vera kominn í þetta samstarf.“ segir Rúrik.
Eliza, Rúrik og Hera. Á myndina vantar Vilborgu.
„Rúrik hefur áður látið sig góðgerðarmálefni varða og eftir að við leituðum til hans sýndi hann mikinn og einlægan áhuga á samstarfi við okkur. Það er okkur mikið gleðiefni að Rúrik hafi þegið boð okkar um að gerast SOS sendiherra.“ segir Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi SOS Barnaþorpanna.
SOS Barnaþorpin eru barnahjálparsamtök sem reka 572 barnaþorp í 126 löndum. Í þeim eru um 90 þúsund börn sem fá öllum sínum grunnþörfum mætt og standa samtökin einnig fyrir fjölda annarra verkefna sem hjálpa sárafátækum barnafjölskyldum í nágrenni barnaþorpanna.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, leit óvænt við og heiðraði okkur með nærveru sinni eftir undirskrift Rúriks á Hótel Hilton.
Sendiherrarnir fjórir
Þrír af fjórum sendiherrum SOS Barnaþorpanna á Íslandi hittust af tilefni undirskriftar Rúriks í dag en Viborg Arna er stödd erlendis og gat því ekki mætt. Hera hefur lengst allra verið sendiherra samtakanna á Íslandi eða frá árinu 2009. Vilborg Arna gekk til liðs við okkur árið 2013 og Eliza árið 2016.
Við kunnum ráðstefnudeild Hilton bestu þakkir fyrir gestrisnina og lánið á þessari glæsilegu aðstöðu.
Nýlegar fréttir
Skrifstofa SOS lokuð milli jóla og nýárs
Skrifstofa SOS Barnaþorpanna verður lokuð milli jóla og nýárs og við opnum aftur 2. janúar. Þurfirðu að koma á framfæri erindi til okkar bendum við á netfangið sos@sos.is og við svörum þér strax og sk...
Nýtt SOS blað komið út
Nýtt SOS blað kom út nú í desember og er það aðgengilegt öllum hér á heimasíðunni okkar. Forsíðuviðtalið er við Ambiku sem ólst upp í SOS barnaþorpi á Indlandi og komst í fréttir á Íslandi í sumar. Hé...