Söfnun hafin fyrir SOS Barnaþorpin í Palestínu og Ísrael
Mikil neyð ríkir nú meðal barna og fjölskyldna í Palestínu og Ísrael og hafa SOS Barnaþorpin á Íslandi hrundið af stað söfnun vegna neyðaraðgerða SOS þar. Þúsundir hafa látið lífið og fjöldi barna misst foreldra sína. SOS Barnaþorpin hafa starfað beggja vegna landamæranna í áratugi og eru í góðri aðstöðu til að hjálpa börnum þar.
Aðgerðir SOS á staðnum
Með aðgerðum okkar í Palestínu og Ísrael hjálpum við fjölskyldum sem orðið hafa viðskila að sameinast á ný og tökum að okkur börn sem misst hafa foreldra sína. Við veitum börnum áfallahjálp og hlúum að geðheilsu þeirra eftir þær miklu hörmungar sem þau hafa upplifað. Þessi þáttur er ekki alltaf í forgangi á neyðar- og hamfarasvæðum en við viljum leggja mikla árherslu á andlega heilsu barna, því við vitum hve miklu máli hún skiptir fyrir framtíð þeirra. Einnig munum við dreifa matvælum, vatni og öðrum nauðsynjum til fólks á svæðinu og gera það í samstarfi við önnur virt, sjálfstæð og vottuð hjálparsamtök.
SOS Barnaþorpin hafa verið til staðar fyrir munaðarlaus og yfirgefin börn í Palestínu frá 1968 og í Ísrael frá 1977 og hafa því yfirgripsmikla þekkingu á aðstæðum. Þá skiptir miklu máli að þessi tvenn landssamtök eiga mjög gott samstarf og ríkir á milli þeirra traust, enda börnin í forgangi en ekki stjórnmál eða landamæradeilur. Þetta góða samstarf mun koma sér vel í aðstoð okkar við börnin.
Börn en ekki pólitík
Aðgerðir samtakanna til hjálpar börnum eru með öllu hlutlausar þegar kemur að stjórnmálum og landamærum. Börnin eru í forgangi, óháð bakgrunni eða stöðu. Verkefnið er unnið í sameiningu landssamtaka SOS í Palestínu og Ísrael og undir ströngu eftirliti alþjóðasamtaka SOS sem hlotið hafa hina alþjóðlegu CHS vottun sem neyðarhjálparsamtök með tilheyrandi ströngum verkferlum og eftirliti. Fagmennska í neyðaraðgerðum skiptir öllu máli.
Nýlegar fréttir
SOS Barnaþorpin auglýsa eftir fjármálastjóra
SOS Barnaþorpin á Íslandi óska eftir að ráða öflugan fjármálastjóra til að stýra fjármálum félagsins. Fjármálastjóri ber heildarábyrgð á fjármálum, reikningshaldi og fjárreiðum auk þess að hafa virka ...
Aðalfundur SOS Barnaþorpanna verður 20. maí
Aðalfundur samtakanna 2026 verður haldinn miðvikudaginn 20. maí kl. 17:00 í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Til þess að félagi geti nýtt félagsleg réttindi sín á aðalfundi skal hann skrá sig á f...