Laust starf: Upplýsingafulltrúi - afleysing
SOS Barnaþorpin á Íslandi auglýsa tímabundna stöðu upplýsingafulltrúa. Starfið er laust frá miðjum maí til loka október.
Helstu verkefni:
- Efnisöflun og skrif fyrir fréttablað og netmiðla. Á tímabilinu verður gefið út eitt prentað fréttablað en vefmiðlar eru uppfærðir daglega með fréttum og upplýsingum til styrktaraðila.
- Samskipti við fjölmiðla, styrktaraðila og samstarfslönd. Um er að ræða skrif á fréttatilkynningum, upplýsingamiðlun til styrktaraðilia og skrifleg samskipti við höfuðstöðvar samtakanna í Austurríki og hugsanlega við starfsstöðvar okkar í öðrum heimsálfum.
- Kynningar. Aðallega í skólum en einnig í félögum og á vinnustöðum.
- Umsjón með verkefnum í grunn- og leikskólum. Sjá Sólblómaleikskólar á heimasíðu samtakanna.
Hæfniskröfur:
- Reynsla og menntun sem nýtast í starfi. Háskólamenntun er ekki skilyrði en getur vissulega verið kostur. Reynsla getur einnig verið mikill kostur, t.d. reynsla af skrifum, myndvinnslu, þýðingum, vefumsjón, markaðsmálum, verkefnastjórnun og störfum meðal barna svo dæmi séu tekin.
- Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta. Viðkomandi þarf að geta haldið uppi samræðum og átt tölvupóstssamskipti á ensku. Við leggjum þó mesta áherslu á góða og vandaða íslensku, talaða og ritaða.
- Brennandi áhugi á málefninu.
- Öguð vinnubrögð, vinnusemi og geta til að starfa bæði sjálfstætt og í hóp.
Nánari upplýsingar hjá framkvæmdastjóra Ragnari Schram í síma 564 2910.
Umsóknir sendist á netfangið umsokn@sos.is fyrir 19. febrúar.
SOS Barnaþorpin eru alþjóðleg hjálparsamtök sem hafa séð munaðarlausum og yfirgefnum börnum um allan heim fyrir fjölskyldu og heimili síðan 1949. Auk þess hjálpa samtökin fátækum barnafjölskyldum til sjálfshjálpar, sinna neyðaraðstoð o.fl.
Nýlegar fréttir
Skemmdir hjá SOS í Úkraínu
Skrifstofa SOS Barnaþorpanna í Kænugarði í Úkraínu varð fyrir skemmdum sl. nótt þegar Rússar létu sprengjum rigna yfir borgina. Starfsfólk er óhult.
Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna
Öflugir jarðskjálftar riðu yfir Venesúela með þeim afleiðingum að þúsundir manna hafa orðið fyrir áhrifum. Börnin og starfsfólkið í SOS barnaþorpunum í landinu eru óhult en lífsreynslan hefur tekið á....