Fréttayfirlit 18. október 2018

Íslendingar hjálpa ungmennum í Sómalíu að fá vinnu

Íslendingar hjálpa ungmennum í Sómalíu að fá vinnu

Utanríkisráðuneytið hefur styrkt SOS Barnaþorpin á Íslandi um 51,5 milljónir króna til að fjármagna atvinnuhjálp ungs fólks í Sómalíu og Sómalílandi. Verkefnið nefnist „The Next Economy“ og stendur yfir í Mogadishu og Hargeisa. Það snýst um að þjálfa ungt atvinnulaust fólk til atvinnuþátttöku, bæði þannig að það geti sótt um vinnu hjá öðrum og/eða stofnað sinn eigin atvinnurekstur.

Styrkur ráðuneytisins nemur 80% af verkefniskostnaðinum en SOS Barnaþorpin á Íslandi greiða 20% eða tæplega 12,9 milljónir króna. Heildarkostnaður við annan hluta verkefnisins sem fjármagnaður er af Íslendingum er 64,4 milljónir króna. Heildarframlag utanríkisráðuneytisins til verkefnisins er kr. 51.525.788.- og heildarframlag SOS Barnaþorpanna á Íslandi kr. 12.881.447.- Samtals kr. 64.407.235.-

Þriðjungur barna býr við sárafátækt

Þrátt fyrir uppgang í efnahag Afríku undanfarin 15 ár virðast atvinnutækifærin ekki rata í hendur stórs hluta 420 milljóna ungmenna álfunnar. Sómalska þjóðin er enn að ná sér á strik eftir áratuga ófrið og óstöðugleika og helmingur þjóðarinnar lifir undir fátæktarmörkum. Einn þriðji hluti barna í landinu býr við sárafátækt.

Ísland hjálpar til 2022

Upphaflega var stofnað til verkefnisins af SOS Barnaþorpunum í Hollandi og í Sómalíu árið 2016 með fjárhagsstuðningi Evrópusambandsins. Fyrsta hluta af þremur lýkur nú í lok þessa árs og þar með aðkomu Hollands og ESB. Þessi fyrsti hluti verkefnisins hefur gengð mjög vel og gefur það góðar væntingar til annars hluta sem fjármagnaður verður af SOS Barnaþorpunum á Íslandi. Sá hluti hefst 1. janúar 2019 og stendur yfir í þrjú ár eða 31. desember 2021. Árið 2022, tekur svo við þriðji og síðasti hluti verkefnisins.

Stjórn SOS Barnaþorpanna í Sómalíu var leyst upp árið 1991 þegar borgarastyrjöld hófst í landinu. Síðan þá hafa samtökin hvorki haft eigin stjórn né eigin lög/samþykktir. SOS Barnaþorpin í Sómalíu heyra beint undir skrifstofu alþjóðaframkvæmdastjóra SOS í Innsbruck í Austurríki og gilda því lög/samþykktir alþjóðasamtakanna fyrir SOS í Sómalíu.

Frá þjálfun í verkefninu í Mogadishu. Frá þjálfun í verkefninu í Mogadishu.

Nýlegar fréttir

Héldum að við yrðum drepin
8. jún. 2023 Almennar fréttir

Héldum að við yrðum drepin

Í apríl sögðum við frá rýmingu barnaþorps í höfuðborg Súdan vegna blóðugra átaka í nágrenni þess. Í kjölfarið var þorpið svo hertekið af vopnuðum sveitum og haldar þær enn til í barnaþorpinu.

Umbætur hjá SOS í kjölfar rannsóknarskýrslu
7. jún. 2023 Almennar fréttir

Umbætur hjá SOS í kjölfar rannsóknarskýrslu

Árið 2021 greindum við frá því að niðurstöður tveggja óháðra rannsókna hafi leitt í ljós ýmsa misbresti í stjórnun SOS Barnaþorpanna á alþjóðavísu og í einstaka löndum. SOS Barnaþorpin á Íslandi áttu ...