Fjögur ár af stríði í Úkraínu: Börn bíða enn eftir öryggi og stöðugleika
Þegar Úkraína minnist fjögurra ára frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa halda börn víðs vegar um landið áfram að alast upp við loftárásarviðvaranir, flótta, rafmagnsleysi og óvissu um framtíðina. Fyrir mörg þeirra hefur stríð orðið bakgrunnur uppvaxtar þeirra.
Áhrifa stríðsins gætir bæði strax og til lengri tíma. „Mörg börn eru í raun útilokuð frá eðlilegri barnæsku og fullri þátttöku í námi og félagslífi,“ segir Serhii Lukashov, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Úkraínu.
Tilfinningalega eru börnin örmagna
Tíðar truflanir á rafmagni, húshitun, skólagöngu og grunnþjónustu halda áfram að hafa áhrif á fjölskyldur um allt land. „Tilfinningalega eru börnin örmagna,“ segir Serhii. „Mörg þeirra hafa alist upp við stöðuga óvissu og ótta.“
Vetraraðstæður hafa gert daglegt líf enn erfiðara. Endurteknar árásir á orkuinnviði hafa skilið margar fjölskyldur eftir án rafmagns og hitunar í langan tíma, og börn koma oft í miðstöðvar SOS Barnaþorpanna frá köldum heimilum.
Á sama tíma sjá þeir sem vinna beint með börnum ekki aðeins vanlíðan heldur einnig seiglu. „Börnin upplifa nú áföll sem ættu ekki að tilheyra barnæsku – mikinn missi, streitu og loftárásir. En á sama tíma búa þau yfir ótrúlegri getu til að jafna sig,“ segir Inha Palamarchuk, sálfræðingur hjá SOS í Úkraínu.
Fyrir mörg börn eru vonir þeirra um framtíðina einfaldar.
Það sem ég vil er að stríðinu ljúki og að pabbi minn komi heim. Eva, 9 ára.
SOS Barnaþorpin bregðast stöðugt við vaxandi þörf
Nærri tvær milljónir barna í Úkraínu eru nú í brýnni þörf fyrir mannúðaraðstoð og 70 prósent þeirra skortir aðgang að grunnþjónustu. Fjölskyldur glíma áfram við flótta, efnahagslega erfiðleika og sálrænan toll af langvarandi krísu.
Frá upphafi allsherjarinnrásarinnar hefur SOS Barnaþorpunum tekist að styðja meira en 600.000 manns innan Úkraínu í samstarfi við staðbundin samstarfssamtök. Um 9.000 úkraínskir flóttamenn hafa einnig fengið stuðning í átta Evrópulöndum.
Innan Úkraínu hafa félagsmiðstöðvar SOS Barnaþorpanna veitt meira en 166.000 börnum á flótta og foreldrum þeirra aðstoð í formi neyðarbirgða, ráðgjafar og sálfélagslegs stuðnings. Meira en 185.000 börn og foreldrar hafa fengið sálrænan stuðning til að takast á við streitu, áföll og missi.
Börn geta leikið sér og lært á yfir 120 barnvænum svæðum víðs vegar um landið, sem bjóða upp á augnablik öryggis og eðlilegs lífs meðan á ósköpunum stendur. Auk þess fá 965 börn sem særðust í stríðinu og fjölskyldur þeirra læknisþjónustu, sálrænan stuðning og endurhæfingu.
Börn geta leikið sér og lært á yfir 120 barnvænum svæðum á vegum SOS Barnaþorpanna víðs vegar um landið.
Daglegt starf við óvenjulegar aðstæður
Að veita þennan stuðning þýðir að starfa undir stöðugu álagi. Loftárásarviðvaranir trufla starfsemi, rafmagnsleysi raskar daglegu lífi og fjölskyldur neyðast oft til endurtekins flótta. Samt heldur stuðningurinn áfram.
„Fyrir okkur styrkir þetta skýra skyldutilfinningu — ábyrgðina að halda áfram starfi okkar fyrir börn og fjölskyldur sem stríðið hefur haft áhrif á, dag eftir dag,“ segir Serhii.
„Áhersla okkar er áfram á fólkið sem við störfum fyrir.“
Nærri fjórar milljónir manna á vergangi í heimalandinu
Fjórum árum eftir upphaf allsherjarinnrásarinnar er þörfin enn gífurleg. Talið er að nærri fjórar milljónir manna séu á vergangi innan Úkraínu, margir á svæðum sem hafa orðið fyrir eldflaugaárásum og búa við skort á húsnæði, þjónustu og orkukerfi.
Þessi tímamót eru tilefni til að líta yfir farinn veg, en einnig til áframhaldandi skuldbindingar. „Áhersla okkar er áfram á fólkið sem við störfum fyrir og skuldbindinguna um að standa með því, óháð þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir,“ segir Serhii.
SOS neyðarvinur
SOS neyðarvinur
SOS Neyðarvinir styrkja neyðaraðgerðir SOS fyrir börn og fjölskyldur þeirra í stríði og á öðrum hamfarasvæðum. Neyðaraðgerðir sem SOS á Íslandi tekur nú þátt í að fjármagna eru í Palestínu, Úkraínu og Súdan. Ef þú vilt velja eitt þeirra landa til að styrkja skrifar þú nafn landsins í athugasemdadálkinn hér neðar. Þú getur annað hvort gefið stakt framlag eða gerst mánaðarlegur neyðarvinur.