Fréttayfirlit 5. júlí 2017

Endurbygging skóla í Sýrlandi

SOS Barnaþorpin á Íslandi eru að fjármagna endurbyggingu á einum grunnskóla í borginni Aleppo í Sýrlandi. Kostnaður er áætlaður 12 milljónir króna en framkvæmdir eru nú þegar hafnar.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki í haust en þá munu yfir 500 börn hefja þar nám. Skólinn verður öllum börnum opinn, burt séð frá uppruna þeirra, trú eða afstöðu foreldra í stríðinu. Um er að ræða hverfi sem heitir Alsukkari en undanfarnar vikur og mánuði hafa barnafjölskyldur flutt aftur í hverfið eftir langan tíma á flótta.

Þrátt fyrir að stríðinu sé langt frá því að vera lokið er ástandið orðið stöðugra á sumum svæðum í landinu. Yfirvöld segjast vilja byggja samfélagið upp á ný og koma börnum aftur í skóla en talið er að 50% barna á aldrinum 5-18 ára í austurhluta Aleppo fari ekki í skóla vegna stríðsástandsins. Margir skólar hafa verið notaðir sem fangelsi, skýli eða eru hreinlega orðnir að rústum.

Á neyd.sos.is er hægt að sjá frekari upplýsingar um verkefnið og leggja því lið. Þá er hægt að millifæra inn á reikning 0130-26-9049, kt. 500289-2529.

DSC_3791.JPG

DSC_3759 (1).JPG

Nýlegar fréttir

SOS Barnaþorpin styrkja starf fyrir fósturbörn á Íslandi
5. nóv. 2026 Erfðagjafir

SOS Barnaþorpin styrkja starf fyrir fósturbörn á Íslandi

SOS Barnaþorpin hafa ráðstafað einni milljón króna af erfðagjöf Baldvsins Leifssonar í styrk til Félags fósturforeldra á Íslandi. Tilgangur styrksins er að efla starf félagsins í þágu fósturbarna hér ...

Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
5. okt. 2026 Almennar fréttir

Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins

Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeld...