Fréttayfirlit 9. júní 2020

Búist við að börnum í fátækt fjölgi um 86 milljónir

Enn hafa engin kórónuveirusmit greinst í SOS barnaþorpum og er það ánægjulegt enda var snemma gripið til viðeigandi ráðstafana. En líf okkar allra hefur breyst á síðustu þremur mánuðum, þá sérstaklega barna sem eiga á hættu að missa foreldraumsjón. Um leið verða sífellt stærri áskoranirnar fyrir SOS Barnaþorpin að annast og vernda þessi börn.

Búist er við að heimsfaraldurinn leiði af sér að börnum sem lifa undir fátæktarmörkum muni fjölga um 86 milljónir fyrir lok ársins og er það fjölgun upp á 15%! Ef hægt er að taka eitthvað jákvætt út úr faraldrinum má helst nefna að tekist hefur að vekja meiri athygli á hversu berskjölduð þessi börn eru og þörfinni á að hjálpa þeim og vernda þau.

SOS í samstarfsaðgerðir til verndar börnum í Afríku

Árið 2017 tóku SOS Barnaþorpin (SOS Children´s Villages) höndum saman með öðrum félagasamtökunum sem vinna að hag og vernd barna og mynduðu bandalagið Joining Forces. Þetta eru auk SOS, Child Fund Alliance, Plan, Save the Children, Terre des Hommes og World Vision. Bandalagið hefur lagt fram aðgerðaáætlun til að draga úr ofbeldi, misnotkun og vanrækslu barna á þessum hættutímum sem á að hrinda í framkvæmd í sumar.

Frá Bólivíu1,5 milljarðar frá Evrópusambandinu

Von er á styrk frá Evrópusambandinu upp á einn og hálfan milljarð króna fyrir þessa áætlun sem felur í sér að efla barnaverndaryfirvöld, foreldrahæfni, sálrænan stuðning, lífsleikniþjálfun og jafningjafræðslu, allt með hag barna í fogrunni í fimm Afríkuríkjum, Senegal, Úganda, Kenía, Malí og Eþíópíu.

Enginn er viðkvæmari en börn

Covid-19 heimsfaraldurinn hefur áhrif og afleiðingar fyrir alla jarðarbúa en enginn hópur er viðkvæmari fyrir þeim en börnin. Þau eru líklegust til að lenda í fátækt og stórauknar líkur eru á að þau verði fórnarlömb ofbeldis og misnotkunar. Þetta hefur þegar sýnt sig nú þegar börn hafa verið föst heima hjá sér í útgöngutakmörkunum.

Erum saman í að bjarga nútíð og framtíð barnanna

Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að við stöndum saman í að verja viðkvæm og berskjölduð börn rétt eins og SOS Barnaþorpin hafa einblínt á og munu gera áfram. Þetta samstarf sýnir að við erum öll saman í að bjarga nútúð og framtíð barnanna.

Nýlegar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins
25. júl. 2024 Almennar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins

Börnin 68 sem flutt voru frá SOS barnaþorpinu í Rafah á Gaza til barnaþorpsins í Bethlehem á Vesturbakkanum í mars sl. eru komin aftur í skóla. Vegna stríðsins féll skólaganga þeirra niður í átta mánu...

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið
3. júl. 2024 Almennar fréttir

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið

Vegna aukinnar þarfar á stuðningi við börn í SOS barnaþorpum hefur sú breyting nú tekið gildi að tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið. Að meðaltali eru um fimm til sex SOS-foreldrar um hvert sty...