Fréttayfirlit 27. mars 2020

Afríka mun fara verst út úr þessum faraldri

Senait BayessaÞó fjöldi smita af völdum kórónuveirunnar sé enn ekki mikill í Afríku í samanburði við verst stöddu löndin í dag, Bandaríkin, Kína, Ítalíu, Spán og Frakkland, benda sérfræðingar  á að vandræðin séu rétt að hefjast á þessu næst stærsta og næst fjölmennasta svæði heims.

„Afríka fer verst út úr þessum faraldri,“ segir Senait Bayessa, svæðisstýra SOS Barnaþorpanna fyrir austur og suður Afríku. „Heilbrigðiskerfi margra afrískra landa eru nú þegar sprungin af völdum annarra sjúkdóma og eru ekki í stakk búin að taka á faraldri af þessari stærðargráðu.“

Fjöldi veirupinna, aðstaða til að mæla stóra hópa fólks, innleiðsla forvarna og úrræði fyrir meðhöndlun sýktra einstaklinga er stórlega ábótavant í Afríku.  Þá eru möguleikar á vitundavakningu um hvernig forðast beri smit óullnægjandi og viðbúið er að spítalar yfirfyllist með þeim afleiðingum að dánartölur verði háar. Þetta mun svo enn frekar lama efnahag Afríku sem fyrir er mjög brothættur.

Frá SOS í MarokkóDauðsföllin verða minnsta áhyggjuefnið

„Flestar fjölskyldur í Afríku búa við fátækt og daglega baráttu við að útvega sér mat. Bara það mun gera fólki enn erfiðara fyrir með að forðast nálægð við annað fólk og smit,“ segir Bayessa.

Dr. Deqa Dimbil, læknir í Mogadishu í Sómalíu, tekur undir þessar áhyggjur Bayessa. „Það sem ég hef mestar áhyggjur af er versnandi efnahagsástand. Hér verður hungursneyð og við munum ekki geta séð fyrir okkur. Sá tímapunktur kemur að dauðsföll af völdum veirunnar verða minnsta áhyggjuefnið.“

Helmingur barna býr hjá ömmu og afa

Bayessa segir að faraldurinn muni koma sérstaklega illa niður á börnum í Afríku. Hún bendir á að vegna HIV/AIDS séu mörg börn foreldralaus og rannsóknir frá fimm Afríkjuríkjum sýna að helmingur allra barna býr hjá ömmu sinni og afa. Þar sem eldra fólk er berskjaldaðra fyrir Covid-19 veirunni er viðbúið að fjöldi barna muni sem höfðu áður misst foreldra sína, muni nú líka missa ömmu sína og afa.

Og Dimbil læknir tekur undir þetta. „Við þurfum að búa okkur undir þá staðreynd að börn munu missa foreldra.“

Neyðarsöfnun SOS

SOS Barnaþorpin víðsvegar um Afríku gera nú ráðstafanir til að mæta ógninni sem framundan og barnaþorpin sjálf eru vel í stakk búin til að minnka líkur á smiti innan þeirra. Mikið álag hefur verið á SOS Barnaþorpunum um heim allan.

„Kostnaður samtakanna úti í heimi eykst hratt á meðan framlögum fer fækkandi. Þess vegna hefur verið blásið til söfnunar um heim allan til að bregðast við ástandinu. SOS Barnaþorpin á Íslandi settu af stað söfnun í byrjun vikunnar og hafa nú þegar safnast um tvær milljónir króna,“ segir Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi SOS á Íslandi.

Ákall hefur komið um aðstoð frá SOS Barnaþorpunum á Ítalíu og viðbúið er að SOS í fleiri löndum þurfi á aðstoð að halda, sérstaklega í Afríku. „Við munum senda þá fjármuni sem safnast til SOS í því landi þar sem þörfin er talin mest hverju sinn,“ segir Hans.

TAKA ÞÁTT Í NEYÐARSÖFNUN SOS

Nýlegar fréttir

Framboð til stjórnar SOS Barnaþorpanna
12. apr. 2024 Almennar fréttir

Framboð til stjórnar SOS Barnaþorpanna

Aðalfundur samtakanna verður haldinn mánudaginn 13. maí kl. 17:30 í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Tilnefningarnefnd SOS Barnaþorpanna óskar nú eftir tillögum um framboð til stjórnar.

Að gefnu tilefni vegna Heru Bjarkar
4. apr. 2024 Almennar fréttir

Að gefnu tilefni vegna Heru Bjarkar

Nokkuð hefur verið um það undanfarið að SOS Barnaþorpin á Íslandi fái skilaboð frá fólki sem lýsir vanþóknun sinni á samstarfi samtakanna við söngkonuna Heru Björk Þórhallsdóttur og þess jafnvel krafi...