Jarðskjálfti í Marokkó

0133-26-004266 (reikningsnúmer)
500289-2529 (kennitala SOS)

Einnig er hægt að styrkja með því að hringja í:
907 1001 (1.000 kr.)
907 1002 (2.000 kr.)

Neyðarástand ríkir í Marokkó eftir risastóran jarðskjálfta sem reið yfir að kvöldi 8. september. Yfir 2.000 manns létust og mikill fjöldi barna og barnafjölskyldna þjáist vegna skjálftans. SOS Barnaþorpin eru á staðnum og taka við framlögum frá Íslendingum hér á síðunni.

Mikil neyð

Ham­far­irn­ar hafa m.a. áhrif á fá­tæk­ samfélög í landinu. Börn hafa orðið viðskila við sína nánustu og mörg hafa misst foreldra sína. Í slíkum aðstæðum geta börn m.a. orðið fórnarlömb mansals. Byggingar hafa hrunið og ljóst er að margir munu þjást af áfallastreituröskun og þurfa á hjálp sérfræðinga að halda. SOS Barnaþorpin kunna að aðstoða í slíkum aðstæðum og eru nú að leggja mat á aðstæður og sinna fyrstu hjálp.

SOS Barna­þorp­in hafa verið til staðar fyrir munaðarlaus og yfirgefin börn í Marokkó í um 40 ár og reka þar fimm barnaþorp auk fjölskyldueflingar fyrir fátækustu barnafjölskyldurnar. Fjöldi Íslendinga hefur styrkt umkomulaus börn í Marokkó í gegnum SOS Barnaþorpin á Íslandi.

Viljir þú heldur styrkja með millifærslu í banka eða heimabanka eru reikningsupplýsingarnar eftirfarandi:

Sjá einnig: Viðbragsáætlun SOS í Marokkó

Jarðskjálfti í Marokkó

Jarðskjálfti í Marokkó

Jarðskjálfti (6,8) skók Marokkó. Mörg börn hafa misst foreldra sína. SOS Barnaþorpin eru á staðnum og hjálpa börnum og fjölskyldum í neyð. Vertu með okkur í að lina þjáningar.

Ég vil greiða með

Við virðum friðhelgi gesta okkar á vefnum og mikilvægi þess að fólk verndi persónulegar upplýsingar. Í persónuverndaryfirlýsingunni okkar kemur fram hvers vegna við öflum, notum og geymum persónuupplýsingar. Persónuverndaryfirlýsing kann að taka breytingum og hvetjum við þig því til þess að kíkja á hana með reglulegu millibili.