SOS sögur 9.mars 2016

„Þessi börn eru framtíðin"

„Einn dag árið 2012 vaknaði ég við hávær sprengjuhljóð. Börnin komu hlaupandi inn í herbergið mitt og við hlustuðum saman á óhljóðin. Ég var afar hrædd en gat ekki leyft börnunum mínum að sjá það. Börn þurfa að finna fyrir því að þau sé örugg og vegna fortíðar barnanna minna þurfa þau sérstaklega mikið á því að halda,“ segir Souda, SOS móðir í barnaþorpinu í Qadsaya í Sýrlandi.

„Við þurftum að yfirgefa heimilið okkar í nokkra daga vegna átakanna en gátum svo snúið til baka. Því miður eru ekki allir sem geta það,“ segir hún sorgmædd en staðreyndin er sú að tæplega sex milljónir barna í Sýrlandi hafa þurft að flýja heimili sín. „Sýrlensk börn eru að upplifa tíma sem ekkert barn ætti að þurfa að upplifa. Þau búa við mikla óvissu og hræðslu ásamt því að mörg þeirra hafa misst foreldra sína eða aðra ástvini.“

DSC07818.JPGSouda hefur starfað sem SOS móðir í tuttugu ár en segist aldrei hafa þurft að sýna eins mikið hugrekki og núna. „Frá því að stríðið hófst hef ég tekið á móti börnum sem misst hafa allt á einu augabragði. Þegar þau koma fyrst í þorpið eru þau í áfalli og oftar en ekki vannærð. Þessi börn þurfa mjög mikla ástúð og ég þarf alltaf að vera til staðar fyrir þau, bæði á góðu og slæmu dögunum.“

„Börn eiga skilið að lifa hamingjuríku og áhyggjulausu lífi. Börnin mín geta það ekki á þessum stríðstímum en ég verð þá að gera mitt allra besta til að gera líf þeirra eins gott og mögulegt er. Ég veiti þeim stöðugleika og ást ásamt því að sinna öðrum grunnþörfum þeirra. Því þessi börn eru framtíðin og við þurfum á því að halda að framtíðin sé björt,“ segir Souda að lokum.

SOS fjölskylduvinur

SOS fjölskylduvinur

SOS fjölskylduvinur

SOS-fjölskylduvinir koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Sem SOS-fjölskylduvinur tekurðu fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!

Mánaðarlegt framlag
7.500 kr 5.000 kr 2.500 kr 1.500 kr