SOS sög­ur 6.maí 2020

Réði ekki við að vera ein­stæð­ur fað­ir

Réði ekki við að vera einstæður faðir

Fyr­ir rúmu ári sögð­um við ykk­ur frá bosn­ísku feðg­un­um Mirza og Har­is sem fyr­ir til­stilli Fjöl­skyldu­efl­ing­ar SOS Barna­þorp­anna voru sam­ein­að­ir á ný eft­ir að­skiln­að. Starfs­fólk SOS í Saraj­evó hitt­ir feðg­ana reglu­lega og nú get­um við kynnst þeim enn bet­ur í með­fylgj­andi mynd­bandi. Í því er rætt við feðg­ana sem eru nú nán­ari en nokkru sinni fyrr.

Mirza réði illa við að vera ein­stæð­ur fað­ir og beitti Har­is of­beldi og var hand­tek­inn. Hann missti for­ræð­ið yfir Har­is og út­lit var fyr­ir að dreng­ur­inn þyrfti að fara í fóst­ur því hann átti móð­ur sína ekki að. Fjöl­skyldu­efl­ing SOS Barna­þorp­anna í Saraj­evó kom feðg­un­um til bjarg­ar og með upp­eld­is­þjálf­un og ráð­gjöf náði Mirza tök­um á föð­ur­hlut­verk­inu. Har­is flutti aft­ur til föð­ur síns og eft­ir það eru þeir nán­ari en nokkru sinni fyrr.

Þakk­lát­ur fyr­ir Fjöl­skyldu­efl­ingu SOS

„SOS Barna­þorp­in hjálp­uðu mér mjög mik­ið, sér­stak­lega af því að það var eng­inn sem ég gat leit­að til. Þökk sé að­stoð þeirra var auð­veld­ara að kom­ast yfir erf­ið­leik­ana með­an ástand­ið var svona. Við erum enn þann dag í dag í sam­bandi við SOS Barna­þorp­in," seg­ir Mirza.

Vill gera pabba stolt­an

Har­is er stolt­ur af föð­ur sín­um og vill gera föð­ur sinn stolt­an af sér. „Hann fórn­aði öllu svo ég gæti átt eðli­legt líf sem barn, svo ég finni fyr­ir ör­yggi, og ég sé eins og öll önn­ur börn. Ég vil gera pabba ham­ingju­sam­an og að hann sé stolt­ur af mér," seg­ir Har­is.


 

Fjöl­skyldu­efl­ing­in í Saraj­evó er eitt af 580 slík­um verk­efn­um SOS Barna­þorp­anna um heim all­an og þau eru sér­snið­in að að­stæð­um á hverj­um stað fyr­ir sig. Skjól­stæð­ing­ar Fjöl­skyldu­efl­ing­ar SOS á heimsvísu eru alls 395,000 tals­ins, börn og sára­fá­tæk­ir for­eldr­ar þeirra.

SOS Barna­þorp­in á Ís­landi fjár­magna Fjölskyldueflingarverkefni í Eþíópíu þar sem við hjálp­um 567 fjöl­skyld­um en í þeim eru 1609 skjól­stæð­ing­ar.

Fjöl­skyldu­vin­ir SOS Barna­þorp­anna ráða sjálf­ir upp­hæð­inni sem þeir greiða mán­að­ar­lega til að hjálpa fjöl­skyld­un­um í okk­ar verk­efn­um.

SOS for­eldri

Vertu SOS for­eldri

SOS foreldri

SOS-for­eldri tek­ur þátt í að fram­fleyta barni sem áður var um­komu­laust og trygg­ir því fjöl­skyldu á góðu heim­ili. Barn­ið fær mennt­un og öll­um grunn­þörf­um sín­um mætt. Þú færð reglu­lega frétt­ir og mynd­ir af SOS-barn­inu þínu.

Þeg­ar þú vel­ur að styrkja „barna­þorp“ styrk­irðu öll börn­in í einu SOS barna­þorpi og færð al­menn­ar frétt­ir úr til­teknu barna­þorpi.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 4.500 kr Styrkja tvö börn 9.000 kr Barna­þorp fyr­ir 4.500 kr