Ólst upp í barnaþorpi og er útskrifuð með BS-gráðu
Það eru ekki bara útskriftarveislur út um allt Ísland þessa dagana. Þessar myndir voru teknar í dag í borginni Blantyre í Malaví þar sem Rebekka Msosa útskrifaðist með BS-gráðu í umhverfisvísindum frá háskólanum fyrir viðskipti og hagnýt vísindi. Rebekka kom ung að árum í SOS barnaþorpið í höfuðborginni Lilongwe þar sem hún ólst upp við stuðning og umhyggju sem hjálpuðu henni að byggja upp traustan grunn fyrir framtíðina.
Þrátt fyrir áskoranir lét Rebekka þær ekki stöðva sig heldur hélt hún áfram að vinna að markmiðum sínum. Hún hóf skólagöngu sína í SOS-grunnskólanum, hélt áfram í framhaldsskóla og lauk nú háskólanámi með glæsibrag. Á leiðinni að þessum gleðilega áfanga hefur hún sýnt mikla seiglu og staðfestu.
Blantyre í Malaví, 18. júní 2026. Rebekka fagnaði útskriftinni með sínum nánustu.
Yfirsteig áskoranir með stuðningi og hvatningu
„Ég glímdi við margar áskoranir á uppvaxtarárum mínum en ég var svo lánsöm að eiga margt fólk að sem hafði óbilandi trú á mér og hvatti mig áfram. Ég er þakklát SOS Barnaþorpunum í Malaví fyrir að veita mér kærleiksríkt heimili, aðgengi að menntun og stuðning til að elta drauma mína. Ég er stolt af því hversu langt ég hef náð. Ég vona að saga mín verði öðrum ungmennum hvatning til að trúa á sjálf sig. Enginn draumur er of stór þegar þú hefur staðfestu og stuðning,“ sagði Rebekka við þetta gleðilega tilefni.
Árangur Rebekku sýnir vel hvað getur gerst þegar börn og ungmenni fá tækifæri, góða menntun og fólk í kringum sig sem trúir á þau. Bak við þennan árangur standa margir – umönnunaraðilar, kennarar, samstarfsaðilar og samfélagið allt – sem hafa lagt sitt af mörkum til að hjálpa henni að ná markmiðum sínum.
Saga hennar minnir okkur á hversu mikilvægt það er að börn og ungmenni fái öruggt uppeldi, stuðning og tækifæri til að láta drauma sína rætast. SOS Barnaþorpin í Malaví
„Við hjá SOS Barnaþorpunum í Malaví erum stolt af því að hafa fylgst með Rebekku vaxa og dafna í gegnum árin. Saga hennar minnir okkur á hversu mikilvægt það er að börn og ungmenni fái öruggt uppeldi, stuðning og tækifæri til að láta drauma sína rætast. Við óskum Rebekku hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega árangur og hlökkum til að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir hana,“ segir á Facebook síðu SOS í Malaví og við hjá SOS á Íslandi tökum heils hugar undir þær heillaóskir.
Alls eru 90 börn og ungmenni í SOS barnaþorpum í Malaví sem njóta stuðnings frá SOS foreldrum á Íslandi.
Rebekka eftir útskriftina 18. júní 2026.
SOS foreldri
Vertu SOS foreldri
SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.
Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.