SOS sög­ur 25.september 2015

„Mað­ur get­ur ekki far­ið út að leika í Sýr­landi“



Elyas er átta ára sýr­lensk­ur dreng­ur. Lengi vel bjó hann með for­eldr­um sín­um og systkin­um í Sýr­landi en þeg­ar for­eldr­ar hans skildu var Elyas send­ur til afa síns. Afi drengs­ins van­rækti Elyas og beitti hann al­var­legu of­beldi. Þeg­ar stríð­ið skall á neydd­ist Elyas til að flýja heim­ili sitt ásamt afa sín­um. Þeir flúðu til Líb­anon þar sem leið­ir þeirra skildu. Elyas fannst einn og yf­ir­gef­in í flótta­manna­búð­um þar í landi og var kom­ið fyr­ir á skamm­tíma­heim­ili SOS Barna­þorp­anna fyr­ir flótta­börn án for­eldra­fylgd­ar.

Það fyrsta sem Elyas gerði þeg­ar hann kom á heim­il­ið var að fara í sturtu. „Það var mjög gott að kom­ast loks­ins í sturtu,“ seg­ir hann og bros­ir. „Mér finnst mjög gott að vera hjá SOS og líð­ur vel. Loks­ins er ég ham­ingju­sam­ur. Hér fer ég í skóla og á leik­föng. Svo fæ ég líka að fara í svona skemmti­ferð­ir.“

Að­spurð­ur hvort hann vilji fara aft­ur til Sýr­lands, hrist­ir hann haus­inn. „Ég vil vera hér. Mig lang­ar að fara í skóla. Mað­ur get­ur held­ur ekki far­ið út að leika í Sýr­landi því þá verð­ur mað­ur kannski fyr­ir spreng­ingu eða verð­ur skot­inn,“ seg­ir Elyas al­var­leg­ur.

En hvað ætl­ar hann að gera í fram­tíð­inni? „Þeg­ar ég verð stór ætla ég að vinna sem kenn­ari. Svo þeg­ar ég er bú­inn að því ætla ég að kaupa bens­ín­stöð og stór­an bíl. Þá get ég far­ið í ferða­lög. Svo lang­ar mig líka að eign­ast konu og börn og vera góð­ur við þau.“

SOS for­eldri

Vertu SOS for­eldri

SOS foreldri

SOS-for­eldri tek­ur þátt í að fram­fleyta barni sem áður var um­komu­laust og trygg­ir því fjöl­skyldu á góðu heim­ili. Barn­ið fær mennt­un og öll­um grunn­þörf­um sín­um mætt. Þú færð reglu­lega frétt­ir og mynd­ir af SOS-barn­inu þínu.

Þeg­ar þú vel­ur að styrkja „barna­þorp“ styrk­irðu öll börn­in í einu SOS barna­þorpi og færð al­menn­ar frétt­ir úr til­teknu barna­þorpi.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 4.500 kr Styrkja tvö börn 9.000 kr Barna­þorp fyr­ir 4.500 kr