SOS sögur 14.ágúst 2026

Gleðistundir á Gaza

Gleðistundir á Gaza

Stuðningur fjölmargra Íslendinga í gegnum SOS Barnaþorpin hjálpar börnum á Gaza í Palestínu sem hafa misst foreldra sína eða eiga á hættu að missa umönnun þeirra. Hann hjálpar líka fjölskyldum sem annast börn, að finna öryggi, stöðugleika og stuðning í einni erfiðustu mannúðarkrísu síðari tíma.

Á hverjum degi vinna félagsráðgjafar og fólk sem annast börn, að því að hjálpa börnum að endurheimta brot af bernsku sinni með því að veita þeim vernd, sálrænan stuðning, tækifæri til náms og umönnun í fjölskylduumhverfi.

Maha Lolas, tengiliður alþjóðlegra styrktaraðila hjá SOS Barnaþorpunum í Palestínu, segir okkur hér sögu úr raunveruleikanum sem lýsir því hvernig stuðningur Íslendinga skiptir máli.

Frá SOS búðum á Gaza - Öll börn þurfa einhvern sem veitir þeim athygli og umhyggju, stendur með þeim og hefur trú á þeim. Frá SOS búðum á Gaza - Öll börn þurfa einhvern sem veitir þeim athygli og umhyggju, stendur með þeim og hefur trú á þeim.

Gleðistundir á Gaza

Á meðan milljónir fótboltaáhugamanna um allan heim fylgdust með heimsmeistaramótinu í sumar fengu systkini á Gaza tækifæri til að njóta einhvers sem skiptir ekki síður máli: sjaldgæfrar stundar þar sem þau gátu hlegið, hvatt sitt lið áfram og einfaldlega fengið að vera börn saman.

Börnin söfnuðust saman fyrir framan skjáinn ásamt Ibrahim, félagsráðgjafa hjá SOS Barnaþorpunum, og gátu leitt hugann frá óvissunni sem umlykur þau. Fyrir þessi systkini er fótboltinn meira en bara leikur. Hann veitir þeim gleði, samveru og áminningu um að bernskan getur enn átt sínar góðu stundir.

Systkinin nutu sín við að horfa á leiki frá HM í fótbolta í sumar. Systkinin nutu sín við að horfa á leiki frá HM í fótbolta í sumar.

Bíða eftir að hitta pabba sinn aftur

Í búðum SOS Barnaþorpanna í Khan Younis er Ibrahim til staðar fyrir börnin á hverjum degi og veitir þeim stuðning, hvatningu og öryggi á meðan þau eru aðskilin frá föður sínum. Unnið er að því að sameina fjölskylduna á ný og á meðan hjálpar hann til við að skapa það örugga og hlýlega umhverfi sem öll börn eiga skilið.

Frá því að börnin komu í búðirnar hafa þau fengið stuðning við andlega líðan, hafið nám að nýju og tekið þátt í ýmsum verkefnum með öðrum börnum. Skref fyrir skref eru þau að endurheimta sjálfstraust sitt, eignast nýja vini og uppgötva aftur hversdagslegar stundir sem veita þeim gleði og von.

Að horfa saman á fótboltaleik kann að virðast hversdagslegt, en fyrir börn sem hafa búið við svo mikla óvissu hafa slíkar samverustundir mikla þýðingu. Þær minna börnin á að þau eru örugg, að einhver stendur með þeim og að þau eru ekki ein.

Öll börn þurfa einhvern sem veitir þeim athygli og umhyggju, stendur með þeim og hefur trú á þeim.

Þökk sé stuðningi almennings við SOS Barnaþorpin fá börn á Gaza þá umönnun, vernd og stuðning sem þau þurfa til að vinna úr erfiðri reynslu, vaxa og horfa með von til framtíðar. Takk fyrir að gera þessar dýrmætu bernskustundir mögulegar.

Maha Lolas,
tengiliður alþjóðlegra styrktaraðila hjá SOS Barnaþorpunum í Palestínu.

SOS foreldri

Vertu SOS foreldri

SOS foreldri

SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.

Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð fréttir þaðan.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 4.500 kr Styrkja tvö börn 9.000 kr Barnaþorp 4.500 kr