Björg heimsótti styrktarbarnið sitt og svaraði spurningum um Ísland í barnaþorpinu
Það er ekki á hverjum degi sem styrktarforeldrar (SOS-foreldrar) fá tækifæri til að heimsækja styrktarbarnið sitt og í raun hefur víða verið lokað á slíkar heimsóknir. Þær eru aðeins heimilaðar að undangengnu ítarlegu mati og umfangsmikilli undirbúningsvinnu þar sem öryggi og velferð barnsins eru ávallt höfð í fyrirrúmi.
Hjónin Björg Pálsdóttir og Cece Loua voru nú í júlí stödd ásamt dóttur sinni hjá fjölskyldu Cece í heimabæ hans, N'zérékoré í Gíneu. Svo vill til að Björg styrkti áður dreng í SOS barnaþorpi í Simbabve og þegar hann flutti þaðan var Björgu og Cece boðið að styrkja annað barn. Íslendingar styrkja börn í SOS barnaþorpum í 106 löndum og tilviljun ein réði því hvert næsta styrktarbarn yrði. Það sem þau vissu ekki þegar þau hófu að styrkja 12 ára stúlku var að hún bjó einmitt í SOS barnaþorpi í þessum heimabæ Cece í Gíneu.
Það lá því beinast við að sækja um leyfi til að heimsækja stúlkuna í næstu ferð til Gíneu og átti sú heimsókn sér stað í upphafi júlí. Eftir heimsóknina skrifaði Björg einlægan pistil á Facebook þar sem hún lýsir upplifun sinni. Frásögnin veitir einstaka innsýn í starf SOS Barnaþorpanna og með leyfi Bjargar birtum við frásögnina hér. Af persónuverndarástæðum er nafn stúlkunnar ekki birt en meðfylgjandi mynd frá heimsókninni er tekin af starfsfólki SOS í barnaþorpinu og birt með leyfi stúlkunnar.
Björg og Cece ásamt dóttur sinni í heimsókninni í barnaþorpið. Stúlkan sem þau styrkja er lengst til hægri á myndinni.
Fyrir þá sem ekki vita þá byrjuðum við nýlega að styrkja stúlku hjá SOS Barnaþorpunum. Það sem við vissum ekki var að hún býr í SOS barnaþorpinu í N'zérékoré, heimaborg Cece. Það kom okkur algjörlega á óvart og fannst okkur ótrúlega falleg tilviljun.
Eftir talsverða pappírsvinnu til að fá leyfi til að heimsækja hana rann stóri dagurinn loksins upp, 7. júlí. Við fórum saman, ég, Cece, Elísa og foreldrar hans. Það var tekið einstaklega vel á móti okkur. Starfsmaðurinn sem hafði verið í tölvupóstsamskiptum við mig talaði ensku og þýddi allt fyrir mig, þar sem flestir aðrir töluðu aðeins frönsku og heimamál sitt.
Áður en við hittum börnin voru skilríkin okkar yfirfarin og við fengum kynningu á starfinu, reglunum og barnaþorpinu. Það var líka ljósmyndari á staðnum. Það sem stóð sérstaklega upp úr var hversu mikið öryggi var á svæðinu og hversu vel hugsað er um börnin.
Svo kom augnablikið sem við höfðum beðið eftir. Ég sá styrktarbarnið okkar um leið og við gengum inn. Það er erfitt að lýsa þeirri tilfinningu. Björg.
Augnablikið sem beðið var eftir
Svo kom augnablikið sem við höfðum beðið eftir. Við gengum inn í lítinn sal þar sem börnin og starfsfólkið tóku á móti okkur með söng og lófataki. Áður en við komum höfðu börnin skoðað hvar Ísland er á heimskortinu og undirbúið spurningar handa okkur.
Ég sá styrktarbarnið okkar um leið og við gengum inn. Það er erfitt að lýsa þeirri tilfinningu. Á þeirri stundu varð allt svo raunverulegt. Hún kom til okkar með fallega innpakkaða gjöf – teikningu sem hún hafði gert sjálf og skrifað á. Ég held að það sé gjöf sem ég mun varðveita alla ævi.
Forvitin um Ísland
Fyrir heimsóknina hafði ég útbúið lítið slideshow á frönsku með hjálp ChatGPT, þó það hafi að mestu verið myndir. Ég talaði á ensku og starfsmaðurinn þýddi fyrir börnin.
Við sýndum þeim meðal annars:
- Snjó og snjókarla
- Snjókast, snjóhús og snjólistaverk
- Börn á skíðum og snjóþotum
- Norðurljósin
- Sundlaugar og leikvelli
- Reykjavík
- Gömlu íslensku jólasveinana
- Og auðvitað jólasveinana eins og við þekkjum þá í dag
Börnin voru ótrúlega forvitin og spurðu okkur meðal annars:
- Hefurðu smakkað gíneskan mat?
- Hver er munurinn á Reykjavík og N'zérékoré?
- Hvaða áhugamál eiga börn á Íslandi?
- Er eitthvað sem kom þér á óvart í Gíneu?
- Er ekki alltof kalt að leika sér í snjónum?
- Eru norðurljósin raunveruleg?
Þau hlógu líka mikið þegar ég sagði þeim að á Íslandi væru yfirleitt bara tveir á mótorhjóli ef einhver er farþegi. Björg.
Börnunum fannst margt fyndið við Ísland
Þegar þau spurðu mig um gíneskan mat sagði ég þeim að mér þætti hann rosalega góður... en ég viðurkenndi líka að ég þyrfti að drekka MIIIIKIÐ vatn með honum því hann væri svo sterkur! Það fannst þeim mjög fyndið.
Þau hlógu líka mikið þegar ég sagði þeim að á Íslandi væru yfirleitt bara tveir á mótorhjóli ef einhver er farþegi. Í Gíneu er maður hins vegar stundum farinn að telja... einn, tveir, þrír, fjórir, fimm... og jafnvel sex manns á sama mótorhjólinu! Oftast án hjálma og stundum meira að segja með lítið barn í burðarsjali. Það fannst þeim mjög fyndið að heyra hvernig við sjáum þetta með íslenskum augum.
Dýrmæt stund með stúlkunni og erfið kveðjustund
Eftir slideshowið fengum við dýrmæta stund með styrktarbarninu okkar. Við sátum saman og spjölluðum, þó starfsfólkið væri alltaf með okkur samkvæmt reglum barnaþorpsins. Síðan var farið út þar sem teknar voru myndir af okkur öllum saman.
Loks kom að kveðjustundinni. Hún var ekki auðveld, en um leið vorum við ótrúlega þakklát fyrir að hafa fengið þetta einstaka tækifæri. Reglur SOS Barnaþorpanna um heimsóknir hafa verið hertar mikið á síðustu árum og það er vel skiljanlegt. Öryggi barnanna kemur alltaf fyrst.
Að fá að hitta styrktarbarnið okkar, sjá umhverfið sem hún býr í og kynnast hinum börnunum var ómetanleg reynsla sem verður alltaf í hjörtum okkar. Björg.
Ógleymanleg heimsókn
Við munum aldrei gleyma þessari heimsókn. Að fá að hitta styrktarbarnið okkar, sjá umhverfið sem hún býr í og kynnast hinum börnunum var ómetanleg reynsla sem verður alltaf í hjörtum okkar. Að styrkja barn hjá SOS Barnaþorpunum kostar okkur lítið í hverjum mánuði en getur skipt gríðarlega miklu máli fyrir barnið.
Ef þið hafið einhvern tíma hugsað um að gerast styrktaraðilar getum við sannarlega mælt með því af eigin reynslu. Það er reynsla sem við erum óendanlega þakklát fyrir.
-Björg Loua Pálsdóttir.
SOS foreldri
Vertu SOS foreldri
SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.
Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð fréttir þaðan.