SOS sögur 2.maí 2019

21 árs með 12 manns í vinnu

21 árs með 12 manns í vinnu

Asiya Saed ákvað að leita sér að vinnu eftir að hún lauk gagnfræðinámi í Sómalílandi fyrir fjórum árum en hún vissi ekkert hvert hún átti að snúa sér.

„Ég rakst allstaðar á veggi og fékkst við allskonar áskoranir. Ég komst að því að það vantaði t.d. alveg miðstöð sem hjálpar atvinnuleitendum að útbúa ferilsskrá og í raun alla tengingu atvinnuleitenda við vinnumarkaðinn,“ segir Asiya sem í framhaldinu sótti um að komast í atvinnueflingu SOS Barnaþorpanna, Next Economy.

Tókst í þriðju tilraun

Þetta gjörbreytti lífi Asiyu sem í dag er 21 árs eigandi fyrirtækis með 12 manns í vinnu. Hún safnaði fé með hópfjármögnun til að hefja rekstur og þrátt fyrir að hafa mistekist í fyrstu tvö skiptin gafst hún ekki upp. „Þá stofnaði ég 2DOON, atvinnumiðlun sem hefur þegar dregið úr atvinnuleysi. Við erum að hjálpa ungu fólki að gera atvinnuumsóknir og koma á tengslum við fyrirtæki. Ég er með 12 manns í vinnu og fyrirtækið er að skila hagnaði.“

Fjármagnað af SOS á Íslandi

SOS Barnaþorpin í Hollandi fjármögnuðu fyrsta stig Next Economy í Sómalíu og Sómalílandi en annað stigið er fjármagnað af SOS á Íslandi. Það hófst í byrjun árs 2019 og stendur yfir út árið 2021.

Utanríkisráðuneyti Íslands styrkir 80% verkefniskostnaðarins eða um 51,5 milljónir króna. Mótframlag SOS á Íslandi er 20% af kostnaðinum eða um 12,9 milljónir kr. Þeir sem greiða frjáls framlög til SOS á Íslandi eru þátttakendur í þessum hluta Next Economy í Sómalíu og Sómalílandi. Yfir 900 umsóknir bárust en 200 einstaklingar komust, jafnt strákar sem stúlkur. 

Þriðjungur barna í sárafátækt

Þrátt fyrir uppgang í efnahag Afríku undanfarin 15 ár virðast atvinnutækifærin ekki rata í hendur stórs hluta 420 milljóna ungmenna álfunnar. Sómalska þjóðin er enn að ná sér á strik eftir áratuga ófrið og óstöðugleika og helmingur þjóðarinnar lifir undir fátæktarmörkum. Einn þriðji hluti barna í landinu býr við sárafátækt.

SOS foreldri

Vertu SOS foreldri

SOS foreldri

SOS-foreldri framfleytir barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.

Þegar þú velur að styrkja „öll börn“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 3.900 kr á mánuði Styrkja tvö börn 7.800 kr á mánuði Öll börn fyrir 4.500 kr á mánuði