„Það var sárt að geta ekki veitt börnunum það sem þau þurftu“
„Lífið var mjög erfitt fyrir okkur áður,“ segir Hiwot, móðir í Arba Minch í Eþíópíu. Þegar erfiðleikarnir voru hvað mestir var eiginmaður hennar í fangelsi og yngsta barnið aðeins sex mánaða gamalt. Hiwot stóð frammi fyrir mikilli óvissu og hafði lítið svigrúm til að sjá fjölskyldunni fyrir því sem hún þurfti. Í dag er staðan allt önnur. Hiwot gerðist þátttakandi í fjölskylduverkefni SOS Barnaþorpanna sem fjármagnað er af Fjölskylduvinum SOS Barnaþorpanna á Íslandi og Utanríkisráðuneytinu.
Arba Minch er í sunnanverðri í Eþíópíu.
Sparnaður varð fyrsta skrefið
Hiwot tók þátt í þessu verkefni SOS í Arba Minch sem við getum nefnt fjölskylduhjálp. Markmið þess er að styðja barnafjölskyldur við að taka skref úr sárafátækt í átt að sjálfbærni – þannig að foreldrar geti sjálfir séð börnum sínum fyrir öruggu heimili og því sem þau þurfa til að vaxa og dafna.
Þar fékk Hiwot stuðning til að styrkja stöðu fjölskyldunnar og byggja upp eigin tekjur. Eitt af því sem reyndist henni mikilvægast var að fá tækifæri til að spara og fá síðar aðgang að láni.
„Ég hef gert sparnað að vana,“ segir hún.
Með sparnaðinum gat Hiwot stigið næsta skref. Hún fékk lán og opnaði litla verslun. Þar selur hún ýmsar daglegar vörur og einnig injera, hefðbundið eþíópískt flatbrauð. Verslunin hefur gefið henni möguleika á að afla tekna sjálf og skapa fjölskyldunni meira öryggi.
Hiwot segir stuðninginn hafa hjálpað henni að halda áfram þegar staðan var erfið. Smám saman hafi hún séð miklar breytingar á lífi sínu.
„Ég veit hversu langt ég er komin og ég er mjög ánægð,“ segir hún. „Stuðningurinn sem ég fékk styrkti mig. Ég er miklu sterkari núna.“
Hiwot í litlu versluninni sinni sem staðsett er við heimili hennar.
Getur nú veitt börnunum það sem þau þurfa
Fyrir Hiwot snýst árangurinn þó ekki fyrst og fremst um verslunina eða lánið. Mikilvægast er að geta séð fyrir börnunum sínum. Hún þekkir vel þá erfiðu tilfinningu þegar barn biður um eitthvað sem það þarf en foreldri hefur ekki efni á að veita því það. Nú getur hún oftar brugðist við þörfum barnanna og segir gleðina sem því fylgir skipta sig miklu máli.
Framtíðarsýnin er skýr. Hiwot vill halda áfram að byggja sig upp og standa með börnunum sínum.
„Ósk mín fyrir börnin mín er að ég geti haldið áfram að vera sterk og stutt þau í námi þeirra.“
Saga Hiwot sýnir hvernig tækifæri til sparnaðar, aðgangur að fjármagni og markviss stuðningur geta orðið upphafið að miklum breytingum. Markmiðið er ekki aðeins að leysa vanda dagsins í dag heldur að gera foreldrum kleift að skapa sjálfir öruggari framtíð fyrir börnin sín.
Hiwot ásamt eiginmanni sínum. Hér eru þau að hella upp á kaffi fyrir fulltrúa SOS á Íslandi sem heimsóttu þau í nóvember 2025.
Fjölskylduhjálpin í Arba Minch er að stærstum hluta styrkt af Utanríkisráðuneytinu í gegnum þróunarsamvinnu Íslands og framlögum SOS fjölskylduvina á Íslandi.
Sjá einnig: Um 100 barnafjölskyldur í Eþíópíu komnar langleiðina út úr sárafátækt
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Sem SOS-fjölskylduvinur tekurðu fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!