SOS sög­ur 25.nóvember 2024

Upp­lifði fé­lags­lega út­skúf­un vegna fá­tækt­ar

Upplifði félagslega útskúfun vegna fátæktar


Zemzem var aðeins 16 ára þegar hún giftist og er í dag fjögurra barna móðir í bænum Iteya í Eþíópíu. Hún varð barnshafandi þegar hún var í tíunda bekk og neyddist til að hætta í skóla. Tekjur eiginmannsins dugðu engan veginn fyrir grunnþörfum fjölskyldunnar og hjónin reyndu að afla aukatekna en þær dugðu skammt.

Zemzem ákvað því eins og marg­ir í henn­ar stöðu að reyna fyr­ir sér í far­and­verka­vinnu í ar­ab­a­lönd­um en þeg­ar þang­að var kom­ið stóðst hún ekki lækn­is­skoð­un og fékk þar af leið­andi ekki at­vinnu­leyfi. Hún sneri þá aft­ur heim til Iteya þar sem við tók áfram­hald­andi líf í sára­fá­tækt en það var ekki eina áskor­un­in sem mætti henni. Zemzem seg­ist aldrei gleyma þeirri sáru til­finn­ingu að upp­lifa út­skúf­un í sam­fé­lag­inu vegna fá­tækt­ar sinn­ar.

Til þess eins að geta lifað af vorum við háð fjölskyldu eiginmanns míns. Við vorum byrði á öðrum og misstum félagslega viðurkenningu i samfélaginu. Zemzem í viðtali við íslenska SOS blaðið.

Fá­tæk­ir út­skúf­að­ir

Við þessi orð varð grein­ar­höf­undi hugs­að til sam­tals sem hann átti við Artúr, fram­kvæmda­stjóra SOS barna­þorps­ins í Nga­bu í Mala­ví. SOS Barna­þorp­in á Ís­landi eru þar í bæj­ar­fé­lag­inu með fjöl­skyldu­efl­ingu þar sem barna­fjöl­skyld­ur í sára­fá­tækt fá betra líf, líkt og í Iteya þar sem Zemzem býr.

Sjá einnig: Rúrik heim­sótti fjöl­skyldu­efl­ingu í Mala­ví

Þegar þú lifir í sárafátækt hættir fólk að líta á þig sem manneskju. Að lokum hættirðu sjálfur að líta á þig sem manneskju. Artúr, framkvæmdastjóri SOS barnaþorpsins í Ngabu í Malaví.

Fá­tæk­ir geta spar­að

Slæm staða Zemzem varð til þess að hún var val­in í hóp þátt­tak­enda í fjöl­skyldu­efl­ingu SOS árið 2018 sem fjá­mögn­uð er með stuðn­ingi Ís­lend­inga. Þessi verk­efni fel­ast í því að barna­fjöl­skyld­ur í sára­fá­tækt fylgja lang­tíma­áætl­un sem mið­ar að því að for­eldr­arn­ir standa að lok­um á eig­in fót­um og geta séð fyr­ir börn­um sín­um. Þá fóru hjól­in loks að snú­ast hjá Zemzem. Til að byrja með varð hún með­lim­ur í sparn­að­ar- og lána­hópi sem veitti henni að­gang að lág­vaxta láni til að opna litla versl­un.

„Ég rek litla sjoppu fyr­ir fram­an heim­il­ið mitt og rækta lít­inn landskika hér skammt frá. Mað­ur­inn minn hafði í fyrstu enga trú á sjoppu­rekstr­in­um en sner­ist svo hug­ur,“ seg­ir Zemzem sem hlaut þjálf­un í gerð fjár­hags­áætl­ana og sótti ýmis fleiri nám­skeið.

Zemzem í sjoppunni sem hún rekur á mörkum lóðar sinnar og götunnar sem hún býr við. Zemzem í sjoppunni sem hún rekur á mörkum lóðar sinnar og götunnar sem hún býr við.

Á núna allt til alls

„Börn­in mín fengu líka styrk fyr­ir náms­gögn­um og skóla­göngu þar til ég út­skrif­að­ist úr verk­efn­inu,“ sagði Zemzem sem í dag á nóg fyr­ir sig og sína og get­ur loks sent öll börn­in sín í skóla. Hún sér fyr­ir sér að geta kom­ið börn­un­um sín­um alla leið í há­skóla og hef­ur auk þess sjálf tek­ið upp þráð­inn í sínu námi þar sem frá var horf­ið.

Zemzem er frá­bær sönn­un þess að fá­tæk­ir geta spar­að eins og lagt er upp með í fjöl­skyldu­efl­ing­unni. Hún á sparn­að bæði fyr­ir sig og börn­in, hef­ur tekj­ur af land­bún­aði og ali­fugl­um og er að byggja ann­að hús­næði sem hún hyggst hafa leigu­tekj­ur af.

 Áður en ég gekk inn í fjölskyldueflinguna var ég í hræðilegri stöðu en síðan hefur orðið stórkostleg breyting á högum okkar. Zemzem

360 barna­fjöl­skyld­ur út­skrif­uð­ust

Þess­ari fjöl­skyldu­efl­ingu okk­ar lauk um sl. ára­mót með þeim góða ár­angri að 360 barna­fjöl­skyld­ur losn­uðu úr viðj­um sára­fá­tækt­ar og standa nú á eig­in fót­um. Nýtt verk­efni er haf­ið í Arba Minch í sunn­an­verðri Eþí­óp­íu og tvö önn­ur verk­efni eru vel á veg kom­in í Mala­ví og Rú­anda. Þá er nýtt verk­efni á loka­metr­um und­ir­bún­ings í Úg­anda.

Sjá einnig: 360 barna­fjöl­skyld­ur í Eþí­óp­íu laus­ar úr viðj­um sára­fá­tækt­ar

Fjölskylduefling sem fjármögnuð er af SOS Barnaþorpunum á Íslandi er hluti af opinberri þróunaraðstoð Íslands í rammasamningi SOS og Utanríkisráðuneytisins. Framlög SOS fjölskylduvina fara líka í fjármögnun sömu verkefna. Fjölskylduefling sem fjármögnuð er af SOS Barnaþorpunum á Íslandi er hluti af opinberri þróunaraðstoð Íslands í rammasamningi SOS og Utanríkisráðuneytisins. Framlög SOS fjölskylduvina fara líka í fjármögnun sömu verkefna.
SOS for­eldri

Vertu SOS for­eldri

SOS foreldri

SOS-for­eldri tek­ur þátt í að fram­fleyta barni sem áður var um­komu­laust og trygg­ir því fjöl­skyldu á góðu heim­ili. Barn­ið fær mennt­un og öll­um grunn­þörf­um sín­um mætt. Þú færð reglu­lega frétt­ir og mynd­ir af SOS-barn­inu þínu.

Þeg­ar þú vel­ur að styrkja „barna­þorp“ styrk­irðu öll börn­in í einu SOS barna­þorpi og færð al­menn­ar frétt­ir úr til­teknu barna­þorpi.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 4.500 kr Styrkja tvö börn 9.000 kr Barna­þorp fyr­ir 4.500 kr