Rauf vítahring fátæktar með íslenskum stuðningi
Makhaza er 42 ára einstæð fjögurra barna móðir í Ngabu Malaví sem gat naumlega séð börnum sínum fyrir einni máltíð á dag, stundum tveimur. Uppskeran brást hjá henni því hún átti ekki fyrir áburði og tekjur hennar dugðu engan veginn til að framfleyta fjölskyldunni. Staðan versnaði með hverjum degi og hún lýsir ástandinu sem hungursneyð, ömurlegra með hverjum deginum sem leið. Ngabu er syðst í Malaví og telst til einna fátækustu svæða heims.
Neyddist til að taka lán hjá óprúttnum okurlánurum
Makhaza fann svo sannarlega fyrir fátæktinni. Einstæða móðirin átti ekki fyrir námsgögnum og prófgjöldum fyrir börnin sín sem gátu þar af leiðandi ekki tekið prófin í skólanum. Þetta olli henni þungum áhyggjum því hún sér menntun barnanna sem lykillinn að því að rjúfa vítahring fátæktarinnar.
Makhaza þurfti nauðsynlega á tekjum að halda og ekki skorti hana hugmyndir að atvinnurekstri en hún átti bara ekki fjármagn til að hefja rekstur. Hún fékk ekki lán hjá bönkum og neyddist til að taka lán hjá óprúttnum okurlánurum. Það reyndist aðeins skammgóður vermir.
Íslenska fjölskyldueflingin kom til bjargar
En skömmu síðar snerist lukkan loks í lið með Makhözu. SOS Barnaþorpin á Íslandi reka einmitt fjölskyldueflingu í Ngabu þar sem við hjálpum barnafjölskyldum í sárafátækt að standa á eigin fótum. Makhaza fékk styrk frá SOS upp á jafnvirði 20 þúsund íslenskra króna en það þykir mjög há upphæð í Ngabu. Hún sótti einnig þjálfun í viðskiptastjórnun á vegum þessarar íslensku fjölskyldueflingar.
Makhaza gerði því næst fjárhags- og markaðsáætlun sem gaf til henni mynd af þörfinni fyrir ákveðnum vörum meðal íbúa. Þetta var á tímabilinu desember 2023 til mars 2024 þegar flest heimili á svæðinu glímdu við hungursneyð. Hún fór að selja maís og hrísgrjón og hagnaðist svo vel að stofnfé hennar hækkaði um 25%.
Peningaskorturinn úr sögunni
Fyrir hagnaðinn gat Makhaza keypt sér tvær geitur og svo bætti hún við annarri tekjuöflun sem felst í að baka og selja mandasi en það er vinsæll götubiti í Malaví sem líkist helst kleinum. Makhaza hefur loks öðlast von um betra líf með auknum tekjum. „Lífið gengur mun betur núna því peningaskortur er úr sögunni,“ segir hún.
Makhaza hefur nú efni á öllum helstu þörfum sínum og er fær um að kaupa skólagögn fyrir börnin. „Makhaza er dugleg að vinna og er bjartsýn á að hún geti stækkað reksturinn sinn,“ segir starfsmaður fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna í Ngabu.
Verkefni Íslands nær til yfir 15 þúsund barna
Íslenska fjölskyldueflingin í Ngabu nær beint til 1500 barna og ungmenna í 400 fjölskyldum sem fá ekki grunnþörfum sínum mætt vegna bágra aðstæðna foreldra þeirra eða forráðamanna. Í fjölskyldueflingu SOS tökum við fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð.
15 þúsund skólabörn af 500 heimilum njóta einnig óbeint góðs af verkefninu sem styður við afar veikbyggða innviði samfélagsins.
Verkefni okkar í Ngabu er fjármagnað að stærstum hluta af Utanríkisráðuneytinu en einnig SOS-fjölskylduvinun, mánaðarlegum styrktaraðilum.
SOS fjölskylduvinur
Gerast SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir styrkja fjölskyldueflingu SOS. Sem SOS-fjölskylduvinur kemurðu í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Í fjölskyldueflingu SOS tökum við fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingapóst um verkefnin sem við fjármögnum.