Fréttayfirlit 21. september 2017

SOS Barnaþorpin fá styrk frá utanríkisráðuneyti Íslands

SOS Barnaþorpin fengu á dögunum styrk frá utanríkisráðuneyti Íslands vegna fjölskyldueflingar í Tulu Moye í Eþíópíu. Styrkurinn er til fjögurra ára og verður framlag ráðuneytisins alls 67.6 milljónir króna.

Á síðasta ári styrkti utanríkisráðuneytið hagkvæmniathugun SOS á Tulu Moye svæðinu og er verkefnið núna beint framhald þeirrar athugunar, enda leiddi hún í ljós mikla þörf fyrir aðgerðir á svæðinu.

Fjölskylduefling SOS Barnaþorpanna í Tulu Moye mun styðja við 1500 börn og forráðamenn þeirra á svæðinu sem berjast við fátækt. Aðalmarkmið verkefnisins er að efla börn, konur og ungmenni svo þau geti tekið fullan þátt í og notið góðs af félagslegum, hagrænum og pólitískum ferlum ásamt því að tryggja velferð og réttindi barna.

Skjólstæðingar verkefnisins fá meðal annars aðgang að heilsugæslu, mataraðstoð, menntun og fræðslu ásamt því að þeir geta fengið vaxtalaust örlán frá SOS Barnaþorpunum. Þá fá allar fjölskyldurnar í verkefninu sólarorkuknúið vatnshreinsitæki sem metur hvenær vatn er orðið drykkjarhæft.

Aðaláhersla samtakanna er að vinna náið með héraðsyfirvöldum, stofnunum, samtökum og öðru heimafólki við að efla hæfni og getu þeirra til að mæta þörfum barna þannig að fjölskyldur geti staðið á eigin fótum og tryggt velferð barna sinna til framtíðar.

SOS Barnaþorpin eru svo sannarlega ánægð með þetta framlag ríkisins og hlakka mikið til komandi tíma.

Nýlegar fréttir

280 fjölskyldur standa nú á eigin fótum í Malaví
17. sep. 2026 Fjölskylduvinir

280 fjölskyldur standa nú á eigin fótum í Malaví

280 fjölskyldur sem tóku þátt í fjölskylduhjálp SOS Barnaþorpanna í Ngabu í Malaví standa nú á eigin fótum. Mun fleiri fjölskyldur urðu sjálfbjarga en stefnt var að í verkefninu sem fjármagnað var af ...

96% fjölskyldna brutust út úr sárafátækt í Rúanda
16. sep. 2026 Fjölskylduvinir

96% fjölskyldna brutust út úr sárafátækt í Rúanda

96% fjölskyldna sem tóku þátt í fjölskylduhjálp SOS Barnaþorpanna í Rúanda standa nú á eigin fótum. Þær útskrifast því úr þessum fasa verkefnisins og í stað þeirra fá nýjar fjölskyldur tækifæri til að...