Eva Ruza í Eþíópíu
Eva Ruza, velgjörðasendiherra SOS Barnaþorpanna, er nú stödd í Eþíópíu þar sem hún kynnir sér hvernig við hjálpum sárafátækum fjölskyldum til sjálfshjálpar. Þú getur fylgst með henni á samfélagsmiðlum.
Þú getur fylgst með Evu þar sem hún heimsækir þátttakendur í þessu verkefni en hún gefur okkur innsýn í líf þeirra og hvernig aðstæður þeirra breytast með þátttöku í verkefninu.
Stuðningur SOS Barnaþorpanna í Arba Minch
Það er fátt sárara en að geta ekki gefið börnum sínum að borða. Það er þó veruleiki fjölmargra um allan heim, ekki síst í Afríku sunnan Sahara. SOS Barnaþorpin, með stuðningi Utanríkisráðuneytisins og almennings á Íslandi, hafa tekið að sér að styðja fátækustu barnafjölskyldurnar í Arba Minch í Eþíópíu til fjárhagslegs sjálfstæðis.
Fylgstu með!
Landsmenn þekkja Evu Ruza sem áhrifavald, skemmtikraft og fjölmiðlakonu svo fátt eitt sé nefnt. En hún er líka velgjörðasendiherra SOS Barnaþorpanna, ásamt þeim Elizu Reid, Heru Björk Þórhallsdóttur og Rúrik Gíslasyni.
Eva er einstaklega skemmtilegur sögumaður og með einlægum frásögnum sínum úr þessari ferð er ekki ósennilegt að hún snerti strengi í hjörtum þeirra sem á horfa.
Fylgstu með Evu í Eþíópíu hér:
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Sem SOS-fjölskylduvinur tekurðu fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!