Ný fjölskylduefling í Malaví nær til 1200 barna í 300 fjölskyldum
Nú í vikunni hófst formlega nýtt verkefni í fjölskyldueflingu í Malaví sem er styrkt af Íslendingum með stuðningi SOS fjölskylduvina og Utanríkisráðuneytisins. Verkefnið er til þriggja ára og mun ná til 1.200 barna úr 300 fjölskyldum í sárafátækt í Chikwawa-héraði.
Með stuðningi við foreldrahlutverkið, hagsmunagæslu, menntun, húsnæðismál og áherslu á sjálfbært lífsviðurværi og fæðuöryggi stefnum við að því að efla fjölskyldur og skapa öruggara, styðjandi umhverfi fyrir börn.
Verkefninu er stýrt af SOS teyminu í Ngabu þar sem nýlokið er fyrsta áfanga í fjölskyldueflingu sem við Íslendingar höfum styrkt síðan 2022. Þessi mynd er frá fyrsta fundi teymisins í þessari viku.
Svona gengur þetta fyrir sig
Í þessum nýja áfanga er sérstök áhersla lögð á að efla foreldra og styrkja getu samfélaga til að styðja betur við barnafjölskyldur í viðkvæmri stöðu — því sterkar fjölskyldur byggja sterka framtíð.
Fjölskyldueflingin okkar í Ngabu hefur hingað til gengið vonum framar og m.a. stóraukið skólasókn barna. Við hlökkum því til að sjá árangursríka innleiðingu og raunverulegan ávinning fyrir börn og fjölskyldur í þessu nýja verkefni.
Sjá einnig: Skólasókn barna í Malaví hefur aukist um 227%
Frá heimsókn í fjölskyldueflinguna okkar í Ngabu 2022. Mynd: Rúrik Gíslason.
Svona getur þú tekið þátt
Allir Íslendingar geta tekið þátt í að styrkja þessa fjölskyldueflingu SOS í Malaví með því að gerast SOS fjölskylduvinur. Það eru mánaðarlegir styrktaraðilar sem geta látið gott af sér leiða fyrir lægri styrkupphæð heldur en SOS foreldrar greiða. SOS fjölskylduvinir fá reglulega upplýsingar af gangi mála og sögur af fjölskyldum í verkefnum okkar.
SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna fjölskyldueflingu í fjórum löndum en þau eru auk Malaví, Eþíópía, Rúanda og Úganda.
Verkefnið í Malaví er styrkt af utanríkisráðuneyti Íslands.
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir styrkja fjölskyldueflingu SOS sem kemur í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Í fjölskyldueflingu tökum við fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingapóst um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!