Fékk loksins að læra
Francis upplifði heimilisofbeldi á hverjum degi og þrátt fyrir að vera táningur þurfti hún að vinna til að framfleyta fjölskyldu sinni. Verandi elsta dóttirin á heimilinu hvíldu helstu skyldurnar á hennar herðum en þeim sinnti hún af miklu hugrekki. Þar af leiðandi gat Francis aðeins sótt skóla hluta úr vikunni og hafði engan tíma fyrir sjálfa sig.
Svona aðstæður eru því miður algengar í Callao hverfinu í Líma, höfuðborg Perú og miðar Fjölskylduefling SOS Barnaþorpanna einmitt að því að hjálpa svona fjölskyldum. Fjölskylduvinir SOS Barnaþorpanna á Íslandi fjármagna fjölskyldueflingarverkefni SOS í Callao.
Svo fór á endanum að Francis og yngsti bróðir hennar komust undir hatt SOS Barnaþorpanna í Callao þar sem líf þeirra breyttist til hins betra. Francis var hrædd í fyrstu eftir aðskilnaðinn við foreldra sína því hún vissi ekki hvað tæki við hjá SOS. Þetta eru eðlilegar tilfinningar en fljótlega upplifði hún hvernig er að vera metin að verðleikum sínum og hún fékk loksins að gera það sem hana langaði mest til. Að læra.
Francis er í dag með næst hæstu einkunnirnar í bekknum sínum og segir öllum frá því með miklu stolti. Þrátt fyrir ýmis vandamál í kringum Francis er hún bjartsýn og með eljusemi og stuðningi SOS Barnaþorpanna ætlar hún að láta alla sína drauma rætast.
Fjölskylduvinir SOS Barnaþorpanna á Íslandi greiða mánaðarlega upphæð að eigin vali og styrkja um leið sárafátækar fjölskyldur í verkefnum okkar í Perú og Eþíópíu.
Nýlegar fréttir
Ný fjölskylduefling í Malaví nær til 1200 barna í 300 fjölskyldum
Nú í vikunni hófst formlega nýtt verkefni í fjölskyldueflingu í Malaví sem er styrkt af Íslendingum með stuðningi SOS fjölskylduvina og Utanríkisráðuneytisins. Verkefnið er til þriggja ára og mun ná t...
Fjögur ár af stríði í Úkraínu: Börn bíða enn eftir öryggi og stöðugleika
Þegar Úkraína minnist fjögurra ára frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa halda börn víðs vegar um landið áfram að alast upp við loftárásarviðvaranir, flótta, rafmagnsleysi og óvissu um framtíðina. Fyri...