Fréttayfirlit 16. september 2026

96% fjölskyldna brutust út úr sárafátækt í Rúanda

96% fjölskyldna brutust út úr sárafátækt í Rúanda

96% fjölskyldna sem tóku þátt í fjölskylduhjálp SOS Barnaþorpanna í Nyamiyaga í Rúanda standa nú á eigin fótum. Þær útskrifast því úr þessum fasa verkefnisins og í stað þeirra fá nýjar fjölskyldur tækifæri til að feta sömu leið – með stuðningi SOS-fjölskylduvina á Íslandi.

Undanfarin fjögur ár hafa 300 fjölskyldur í Nyamiyaga í norðurhluta Rúanda fengið stuðning til að byggja sig upp úr mikilli fátækt og skapa börnum sínum öruggari framtíð. Alls náði verkefnið beint til 1.902 einstaklinga, þar af 1.426 barna og ungmenna. Markmiðið hefur frá upphafi verið skýrt: Ekki að fjölskyldurnar verði háðar aðstoð heldur að þær öðlist þekkingu, tækifæri og verkfæri til að sjá sjálfar fyrir börnum sínum.

Fjallað var um þetta verkefni í sjónvarpsþættinum Rúrik í Rúanda sem sýndur var á RÚV 13. apríl 2026. Rúrik Gíslason, velgjörðasendiherra SOS á Íslandi, kynnti sér þetta verkefni og hitti fjölskyldur sem sem tóku þátt í því. Meðal þeirra voru Aloys og eig­in­kona hans, Annonciatha sem náðu að brjótast út úr sárafátækt og standa nú á eigin fótum.

Tekjurnar jukust og fjölskyldurnar urðu sjálfstæðari

Árangurinn er mikill. Við upphaf verkefnisins sögðust aðeins 15% fjölskyldna hafa náð að auka tekjur sínar. Við lok þessa fasa var hlutfallið komið í 88%. Þekking á rekstri, fjármálum og sparnaði jókst jafnframt verulega.

Alls luku 233 einstaklingar starfsnámi, meðal annars í saumaskap, bifvélavirkjun, hárgreiðslu, suðu og múrverki. Margir hafa síðan stofnað eigin smárekstur eða fengið launaða vinnu. Þá starfa yfir 21 sparnaðar- og lánahópar með 525 þátttakendum sem geta nú sparað, fengið smálán og fjárfest í eigin framtíð.

Hjónin Annonciatha og Aloys ásamt syni sínum. Hjónin Annonciatha og Aloys ásamt syni sínum.

Börnin njóta ávinningsins

Bætt afkoma er þó aðeins hluti árangursins. Jákvæðar uppeldisaðferðir jukust úr 35% í 97% og 83% heimila greindu frá minna heimilisofbeldi. Heilbrigðistrygging fjölskyldna jókst jafnframt úr 24,5% í 98%.

Mikilvægasta niðurstaðan er þó sú að þegar þessi fasi var gerður upp voru 96% fjölskyldnanna metnar sjálfbjarga og færar um að halda áfram án beins stuðnings verkefnisins.

Nú fá fleiri fjölskyldur sama tækifæri

Þetta þýðir ekki að fjölskylduhjálp SOS Barnaþorpanna í Rúanda sé lokið. Þvert á móti. Þegar ein fjölskylda stendur á eigin fótum skapast svigrúm til að hjálpa þeirri næstu.

Þökk sé SOS-fjölskylduvinum á Íslandi geta fleiri fjölskyldur nú hafið sömu vegferð – út úr fátækt og í átt að sjálfstæði, öryggi og betri framtíð fyrir börnin sín. Ut­an­rík­is­ráðu­neyt­ið legg­ur til stærstan hluta fjár­mögn­un­ar­inn­ar og er það lið­ur í op­in­berri þró­un­ar­sam­vinnu Ís­lands.

SOS fjölskylduvinur

SOS fjölskylduvinur

SOS fjölskylduvinur

SOS-fjölskylduvinir koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Sem SOS-fjölskylduvinur tekurðu fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!

Mánaðarlegt framlag
7.500 kr 5.000 kr 2.500 kr 1.500 kr