Fréttayfirlit 13. október 2020

66-faldaðu þúsundkallinn!

66-faldaðu þúsundkallinn!

Styrktaraðilar SOS á Íslandi sem styðja við fjölskyldueflinguna nefnast SOS-fjölskylduvinir. Þeir greiða mánaðarlegt framlag að eigin vali sem 66-faldast á verkefnasvæðinu í Eþíópíu. Með öðrum öðrum verður eittþúsund króna framlag á Íslandi að 66 þúsund krónum á verkefnissvæði okkar í Eþíópíu.

Það eru útreiknuð langtímaáhrif sem skýrast m.a. af því að fjölskyldurnar fara að afla sér tekna og framkvæmdagleði eykst. Allt hefur þetta svo áhrif á nærsamfélagið og innviði þess með fyrrgreindum keðjuáhrifum. Ávinninningurinn af stuðningi við Fjölskyldueflinguna er því afar mikill fyrir samfélagið.

Stuðst er við úttekt sem hið virta ráðgjafafyrirtæki Boston Cunsulting group gerði á fjölskyldueflingu SOS í 6 Afríkuríkjum og einu Asíuríki. Þetta eru Afríkulöndin Eþíópía, Svasíland, Fílabeinsströndin, Senegal, Tógó og Tansanía og svo að lokum Nepal í Asíu.

Þú hjálpar barnafjölskyldu út úr sárafátækt og börnin geta verið áfram hjá foreldrum sínum.

SOS Barnaþorpin sjá ekki aðeins yfirgefnum börnum fyrir SOS-mömmu, -fjölskyldu og heimili. Samtökin standa líka fyrir Fjölskyldueflingu, árangursríku forvarnastarfi sem kemur í veg fyrir sundrungu í barnafjölskyldum.

  • Gefðu manni fisk og hann fær að borða í dag.
  • Kenndu manni að veiða fisk og þú tryggir honum máltíðir út ævina.

Þetta forna máltæki lýsir vel tilgangi fjölskyldueflingar SOS. Við hjálpum fjölskyldum í sárafátækt að standa á eigin fótum svo foreldrarnir geti sinnt grunnþörfum barna sinna.

Fjölskylduefling gengur m.a. út á að:

  1. hjálpa foreldrunum að skapa sér vinnu svo þeir geti aflað tekna og skapað stöðugt fjölskylduumhverfi.
  2. tryggja börnum, stúlkum jafnt sem drengjum, aðgengi að menntun, t.d. með greiðslu á skólagjöldum, skólagögnum og stoðkennslu.
  3. veita ókeypis heilbrigðisþjónustu fyrir börn og barnshafandi mæður
  4. sjá foreldrum fyrir fræðslu um uppeldi og heimilishald.
  5. veita fjölskylduráðgjöf til að vinna úr vandamálum.

 

Íslendingar efla fjölskyldur í Eþíópíu

SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna fjölskyldueflingarverkefni á strjálbýlu svæði í Eþíópíu, í og útfrá bænum Iteya. Um 1600 manns eru skjólstæðingar í þessu verkefni, börn, ungmenni og foreldrar þeirra og höfum við frá árinu 2018 náð að stórbæta aðstæður þeirra.

SOS fjölskylduvinur

Gerast SOS fjölskylduvinur

SOS fjölskylduvinur

Sem SOS-fjölskylduvinur kemurðu í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Í fjölskyldueflingu SOS tökum við fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingapóst um verkefnin sem við fjármögnum.

Mánaðarlegt framlag
1.500 kr 2.500 kr 5.000 kr 7.500 kr