Fréttayfirlit 10. ágúst 2026

30 ungmenni í Rúanda komin í háskólanám fyrir tilstilli erfðagjafar Baldvins

30 ungmenni í Rúanda komin í háskólanám fyrir tilstilli erfðagjafar Baldvins

Alls hafa 30 ungmenni í Rúanda hafið háskólanám með stuðningi erfðagjafar sem SOS Barnaþorpin á Íslandi ráðstöfuðu hluta af árið 2025. Markmiðið er að gera 39 ungmennum, sem notið hafa stuðnings SOS, kleift að ljúka háskólanámi og skapa sér betri framtíð.

SOS Barnaþorpin vörðu alls 23 milljónum króna af erfðagjöf Baldvins Leifssonar til námsstyrkjanna. Verkefnið er unnið í samstarfi við UNICAF, alþjóðlegan háskóla- og námsstyrkjavettvang sem býður upp á fjarnám í samstarfi við viðurkennda háskóla. Það veitir ungmennunum 87% afslátt af skólagjöldum og framlagið frá Íslandi stendur undir þeim 13% sem eftir eru og tryggir þannig að fjárhagur komi ekki í veg fyrir háskólanám þeirra.

Fyrir utan landsskrifstofu SOS Barnaþorpanna í Kígalí í Rúanda. Hluta af erfðagjöf Baldvins Leifssonar er varið í háskólanám ungmenna í Rúanda. Fyrir utan landsskrifstofu SOS Barnaþorpanna í Kígalí í Rúanda. Hluta af erfðagjöf Baldvins Leifssonar er varið í háskólanám ungmenna í Rúanda.

Mikil fjölbreytni í námi ungmennanna

Alls sóttu 109 ungmenni um styrk. Samkvæmt nýrri stöðuskýrslu hafa 30 þeirra, 13 konur og 17 karlar, verið samþykkt og innrituð í háskóla. Það jafngildir tæplega 77% af markmiði verkefnisins. Fimm umsóknir eru enn til skoðunar og 33 umsækjendur þurfa að skila frekari gögnum. Aðrar umsóknir uppfylltu ekki inntökuskilyrði.

Ungmennin stunda fjölbreytt nám, meðal annars í reikningshaldi og fjármálum, lögfræði, hótel- og ferðaþjónustustjórnun, verkefnastjórnun, birgðastjórnun, tungumálum, opinberri stjórnsýslu og alþjóðasamskiptum. Einn námsmaður hefur þegar lokið fyrsta námsári sínu og er nú kominn á annað ár.

Frá Kígalí, höfuðborg Rúanda. Frá Kígalí, höfuðborg Rúanda.

SOS Barnaþorpin í Rúanda styðja ungmennin einnig í gegnum umsóknarferlið og veita þeim aðgang að tölvum og nettengingu. Það skiptir miklu máli þar sem mörg þeirra búa á afskekktum svæðum og hafa takmarkaðan aðgang að stafrænum búnaði.

Á næstu misserum verður áfram lögð áhersla á eftirfylgni, námsráðgjöf og persónulegan stuðning. Markmiðið er ekki aðeins að ungmennin komist í háskóla heldur að þau hafi raunhæf tækifæri til að ljúka námi og byggja upp sjálfstæða framtíð.

Sjá einnig: Fræðsluspjall um erfðaskrár

Erfðagjöf

Erfðagjöf

Erfðagjöf

Erfðagjafir hafa gert samtökunum kleift að hjálpa mun fleiri munaðarlausum og yfirgefnum börnum en ella. Sá sem gefur erfðagjöf tekur sjálfur ákvörðun um ráðstöfun eigna sinna í stað þess að eftirláta öðrum þá ákvörðun.

Nánar