Fréttayfirlit 2. febrúar 2026

Svona er staðan hjá SOS í Palestínu

Svona er staðan hjá SOS í Palestínu


Nokkur tími er nú liðinn frá því vopnahlé tók gildi á Gaza en áhrifa átakanna gætir enn í daglegu lífi barna og fjölskyldna. Framundan er margra ára uppbyggingarstarf, m.a. hjá SOS Barnaþorpunum, enda var SOS barnaþorpið í Rafah jafnað við jörðu.

Nærri sjö hundruð Íslendingar styrkja starfsemi SOS Barnaþorpanna í Palestínu mánaðarlega sem SOS foreldrar og SOS neyðarvinir auk þúsunda annarra sem hafa styrkt hafa aðgerðir samtakanna í þágu barna með stökum framlögum. Þessi framlög eru svo sannarlega að komast til skila og nýtast vel eins og styrktaraðilar geta lesið sér nánar til um hér.

Framlög SOS foreldra barna á Gaza

Ekkert SOS barnaþorp er lengur starfandi í Rafah á Gaza né föst starfsemi SOS í borginni. Barnaþorpið eyðilagðist í sprengingum árið 2024 en það hafði áður verið rýmt. Börnin sem flutt voru frá Rafah til Betlehem hafa formlega verið skráð í barnaþorpið í Betlehem. Fimm börn sem urðu eftir á Gaza halda áfram að njóta stuðnings SOS í gegnum verkefni samtakanna þar.

Vegna öryggisaðstæðna hafa verkefni sem áður tengdust barnaþorpinu í Rafah verið flutt, sett tímabundið á bið eða aðlöguð og framkvæmd á öðrum aðgengilegum svæðum á Gaza, einkum í Khan Younis. Öryggi barna og aðgengi að þjónustu eru ávallt í forgangi.

SOS Barnaþorpin munu áfram notast við nafn barnaþorpsins í Rafah í styrktarkerfi samtakanna en starfsemin hefur verið færð undir ramma neyðarverkefna SOS á Gaza. Framlögum SOS foreldra sem styrkja barnaþorpið Rafah er því varið í þá starfsemi sem lýst er nánar hér neðar.

Börn í SOS skóla á Gaza, október 2025. Börn í SOS skóla á Gaza, október 2025.

Nýting styrktarfjár

Styrktarfé SOS foreldra barna á Gaza er verkefnamiðað og er notað til að tryggja umönnun barna sem upphaflega bjuggu í barnaþorpinu í Rafah fyrir eyðileggingu þess.

Fjármagnið er meðal annars notað til:

  • umönnunar og verndar barna sem flutt voru frá Rafah og samþætt í önnur úrræði SOS, þar á meðal í barnaþorpinu í Betlehem.
  • áframhaldandi stuðnings við börn sem eru enn í umsjá SOS á Gaza.
  • neyðar- og mannúðaraðstoðar í þágu barna á Gaza.
  • neyðar- og aðlögunarverkefni á sviði barnaverndar og sálfélagslegs stuðnings á Gaza.

Allir nýir SOS foreldrar barna á Gaza munu áfram styðja þessi verkefni og þannig tryggja umönnun og vernd barna sem tengjast verkefnum samtakanna á Gaza, hvar sem hægt er að veita þeim öruggan stuðning.

Menntun og sálfélagslegur stuðningur fyrir börn sem flutt voru til Betlehem

Börn sem flutt voru frá Rafah og yfir í barnaþorpið í Betlehem eru núna í fjölskylduumönnun þar. Þau eru skráð í formlegt skólakerfi eða önnur viðeigandi menntastig, eftir aldri, fyrri námsreynslu og einstaklingsþörfum.

Samhliða þessu fá börnin áframhaldandi sálfélagslegan stuðning, þar á meðal einstaklings- og hópviðtöl og reglulega eftirfylgd. Markmiðið er að styðja við tilfinningalegan bata, stöðugleika og velferð barna eftir flutning og erfiða reynslu.

SOS foreldri barna á Gaza

SOS foreldri barna á Gaza

SOS foreldri barna á Gaza

Sem SOS foreldri barna á Gaza styrkir þú SOS barnaþorpið í Rafah á Gaza í Palestínu með mánaðarlegu framlagi sem nemur 4.500 krónum. Framlagi þínu er varið í daglegan rekstur svo tryggja megi öryggi og velferð þeirra barna sem eru á framfæri barnaþorpsins og fer þeim nú fjölgandi.

Mánaðarlegt framlag
4.500 kr