Heildarframlög til SOS Barnaþorpanna á Íslandi aldrei verið hærri

Árið 2024 var metár í rekstri SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Heildarframlög styrktaraðila námu samtals 884 milljónum króna og voru tekjur samtakanna 19% hærri en árið á undan, sem þá var einnig metár. Alls voru heildartekjur samtakanna 952 milljónir króna. Hlutfall rekstrarkostnaðar var með því lægsta sem gerist eða 14,5%. Það þýðir að 85,5% framlaganna, eða 855 krónur af hverju eitt þúsund króna framlagi, renna í sjálft starf samtakanna fyrir umkomulaus og bágstödd börn víða um heim.
88% styrkja koma frá almenningi
Á árinu 2024 styrktu 22.445 einstaklingar og 542 lögaðilar SOS Barnaþorpin á Íslandi, ýmist með mánaðarlegum framlögum, stökum eða bæði. 10.603 Íslendingar voru mánaðarlegir styrktaraðilar í lok árs. Af þeim 884 milljónum sem söfnuðust frá styrktaraðilum kom 88% styrkja frá almenningi eða rúmar 782 milljónir kr. Stærsti hluti af framlögum til SOS á Íslandi kemur frá SOS-foreldrum sem við sendum til barnaþorpa í 107 löndum. Styrktarbörn og styrktarþorp Íslendinga voru alls 9.609 talsins.
Sjá einnig: Ávarp fjármálastjóra


Stærsta erfðagjöf í sögu SOS Barnaþorpanna
SOS Barnaþorpin á Íslandi fengu stærstu erfðagjöf í sögu samtakanna eftir að Landsréttur úrskurðaði erfðaskrá Baldvins Leifssonar vél-, renni- og bátasmiðs, gilda og SOS Barnaþorpin þar með aðalerfingja hans. Þetta var endanlega staðfest af Hæstarétti þegar beiðni um kæruleyfi var hafnað.
Staðfesti Landsréttur þar með úrskurð Héraðsdóms Reykjaness, þess efnis að SOS Barnaþorpin væru lögmætur bréferfingi Baldvins sem lést í maí 2022, áttræður að aldri. Baldvin var ókvæntur og barnlaus. Eignir Baldvins námu 138 milljónum króna en eftir að kostnaður félagsins við dómsmál, sem nam 5,5 milljónum, og skipti dánarbús, sem nam 4,6 milljónum var frádreginn reyndist arfupphæðin til samtakanna 128 milljónir króna.
SOS Barnaþorpin eru óendanlega þakklát Baldvini fyrir að hafa ráðstafað eigum sínum í þágu bágstaddra barna, enda munu fjölmörg börn njóta góðs af og öðlast betra líf fyrir vikið. SOS Barnaþorpin eru á almannaheillaskrá hjá Skattinum og eru því undanþegin erfðafjárskatti.
Nú þegar er búið að ráðstafa um 23 milljónum af erfðafénu til háskólamenntunar ungmenna í Afríku, nánar tiltekið í Rúanda. Sú ráðstöfun er komin til þar sem Baldvin heitinn kom við á skrifstofu SOS Barnaþorpanna áður en hann gerði erfðaskrána og ræddi hugmyndir sínar um að stofna sjóð til að styðja við háskólanám munaðarlausra ungmenna.
Þessi mikli stuðningur er engin nýlunda. Fjöldi Íslendinga hefur stutt dyggilega við hjálparstarf SOS frá stofnun samtakanna hér á landi 1989 og staðið með munaðarlausum og yfirgefnum börnum á erfiðum tímum. Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi
Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi var haldinn mánudaginn 19. maí sl. og þar voru ársreikningur og ársskýrsla samtakanna kynnt aðildarfélögum samtakanna. Í ársskýrslunni kemur m.a. fram að 65.300 umkomulaus börn og ungmenni eru á framfæri samtakanna í barnaþorpum og annarri sambærilegri umönnun um allan heim.
Ársskýrslan og ársreikningurinn eru aðgengileg hér á heimasíðunni undir flipanum Um SOS / fjármál. Þar má einnig finna ársskýrslur og ársreikninga mörg ár aftur í tímann.

„Svona tækifæri gefst mér bara einu sinni á ævinni“
Í ársskýrslunni er einnig viðtal við Sonam Gangsang sem ólst að stórum hluta upp í SOS barnaþorpi fyrir börn landflótta Tíbetbúa á Indlandi. Hún kom hingað til lands sl. haust í þeim tilgangi að hitta Ingibjörgu Steingrímsdóttur sem styrkti Sonam frá því hún var 6 ára í barnaþorpinu.
Stuðningur Ingibjargar varð til þess að Sonam hefur náð langt í lífinu og gegnir hún mikilvægri stöðu í menntamálaráðuneyti Tíbeta á Indlandi. Margir Íslendingar muna eflaust eftir þeim Sonam og Ingibjörgu enda var ítarleg umfjöllun um hjartnæma endurfundi þeirra í Landanum á RÚV sl. haust.
„Þetta var dásamleg heimsókn. Svona tækifæri gefst mér bara einu sinni á ævinni. Það gladdi mig að sjá hana svona ánægða,“ segir Sonam sem fannst sérstaklega merkilegt að koma inn á heimili Ingibjargar eftir allan þennan tíma.
Sjá einnig: „Þetta var mjög tilfinningaþrungin stund fyrir mig“

Engar breytingar á stjórn SOS
Engar breytingar urðu á stjórn SOS Barnaþorpanna á Íslandi á aðalfundinum. Kristján Þ. Davíðsson er formaður stjórnar og auk hans sitjá í Anna Bjarney Sigurðardóttir, Ingibjörg E. Garðarsdóttir, Ólafur Örn Ingólfsson og Þorsteinn Arnórsson. Varamaður er Svala Ísfeld Ólafsdóttir.

Nýlegar fréttir

855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið
Ársskýrsla SOS Barnaþorpanna fyrir árið 2024 hefur nú verið birt eftir aðalfund samtakanna 19. maí sl. Þar kemur m.a. fram að hlutfall rekstrarkostnaðar er með því allra lægsta sem gerist eða aðeins 1...

23 milljónum króna af erfðagjöf ráðstafað til háskólamenntunar
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ráðstafað 23 milljónum króna af erfðagjöf til háskólamenntunar ungmenna í Afríku, nánar tiltekið í Rúanda. Ráðstöfunin er samkvæmt óskum arfleifanda, Baldvins Leifssonar...