Fréttayfirlit 25. febrúar 2025

Skattaafsláttur vegna framlaga til SOS

Skattaafsláttur vegna framlaga til SOS

Á síðasta ári styrktu 22.399 Íslendingar hjálparstarf SOS Barnaþorpanna. Skattstofn þessara einstaklinga lækkar fyrir vikið um samtals 623 milljónir króna og eiga því margir von á endurgreiðslu frá Skattinum vegna framlaga til SOS.

Nú í lok mánaðarins verða framtöl einstaklinga aðgengileg á þjónustuvef Skattsins. Styrkupphæðir til SOS Barnaþorpanna munu vera forskráðar á framtölin (reitur 155 í kafla 2.6 á tekjusíðu framtals) hjá styrktaraðilum og því þurfa þeir ekkert að gera annað en gleðjast yfir lægri skattstofni og væntanlegum endurgreiðslum.

Alls mun skattstofn þessara 22 þúsund Íslendinga lækka um 623 milljónir króna, eða að meðaltali um 28 þúsund krónur á mann.

Ef við tökum dæmi af styrktaraðila sem styrkti SOS Barnaþorpin um 4.500 á mánuði allt síðasta ár mun skattstofn hans lækka um 54.000 kr. Ef viðkomandi er launþegi á meðallaunum þýðir þetta að skattgreiðslur hans fyrir 2024 lækka um ca. 21.500 kr. og ef hann er ekki í skuld við Skattinn mun hann fá þá upphæð endurgreidda frá Skattinum.

Því hærri sem styrkurinn til SOS var á árinu, því hærri er endurgreiðslan.

Sjá nánar á vefsíðu Skattsins.

SOS foreldri

Vertu SOS foreldri

SOS foreldri

SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.

Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 4.500 kr Styrkja tvö börn 9.000 kr Barnaþorp fyrir 4.500 kr